Kvótann heim
Kvótakerfið til róttækrar skoðunar
Ögmundur Jónasson stjórnar þættinum.

Klippur

MÓTMÆLI Í MORGUNMAT : FRIÐARVIÐRÆÐUR
Oddný Eir býður til friðarviðræðna á sunnudagsmorgnum og umræðu um mótmæli í morgunmat. Fyrstu gestir þáttarins eru þau Ásgeir Brynjar …

Munu Úkraínumenn fá nóg af skotfærum?
Tjörvi Schiöth segir fréttir ag gangi stríðsins, þörf Úkraínumanna fyrir vopn og skotfæri, mannfallið á vígvellinum og af auknum vangaveltum …

Var þetta valdarán, uppreisn eða bara leikrit?
Tjörvi Schiöth fer yfir fréttir af uppreisn Prigósjíns og Wagnerliða, kenningar um um hvað þetta snerist og túlkanir um hvaða …

Hver er lærdómurinn af verkalýðsbaráttu í meira en 100 ár?
Sigurður Pétursson sagnfræðiingur fer yfir lærdóminn af tíu þáttum Samtals á sunnudegi um verkalýðsmál.
Þættir

Talað tæpitungulaust gegn spillingu og í þágu vistvænna veiðaarrow_forward
Í þættinum er rætt við Ragnar Önundarson, viðskiptafræðing um fiskveðikerfið en hann er talsmaður þess að ýta stórtækum togurum utar og rýma þannig fyrir smábátaveiðum við strendur landsins. Ragnar var ómyrkur í máli um spillingu og yfirgang. Það var Sveinbjörn Jónsson, sjómannaforingi frá Vestfjörðum líka. Hann talar af langri reynslu og miðlar í þættinum – í óbundnu máli og bundnu!

Samtekt Ögmundar og Gunnars Smáraarrow_forward
Í þessum þætti ræðast þeir við Ögmundur Jónasson og Gunnar Smári Egilsson um stöðuna hvað kvótakerfið áhrærir og fara yfir lög og lagabreytingar, hvernig eignarréttarákvæðin, það er að segja í þágu þjóðarinnar, koma inn í lögin á sínum tíma og hverni reynt er leynt og ljóst að grafa undan þeim, m.a. af hálfu núverandi ríkisstjórnar. Vikið er að nauðsynlegum breytingum á stjórnarskrá og ýmsu öðru sem snerta kvótakerfið.

Gróðasókn á kostnað vistkerfisins er tilræði við framtíðinaarrow_forward
Í viðtölum Ögmundar Jónassonar við tvo reynslumikla menn annars vegar Jóhannes Sturlaugsson, líffræðing, með áratuga reynslu af rannsóknum, og Arthúr Bogason, foringja smábátasjómanna um áratugskeið, kemur fram afdráttarlaus krafa um endurmat, að fiskveiðikerfið verði tekið til róttækrar endurskoðunar! AB: það er skrýtin tilfinning að vera á smábát að veiðum úti fyrir ströndinni en á milli þín og lands er stórvirkur togari að veiðum!

Ríkisstjórnin styrkir einkaeignarréttarkröfu stórútgerðarinnararrow_forward
Ögmundur Jónasson rekur ýmis ummæli talsmanna stórútgerðarinnar og rýnir í frumvarp ríkisstjórnarinnar um eignatengsl í sjávarútvegi. Hann sýnir fram á að í greinargerð með stjórnarfrumvarpi um eignatengsl í sjávarútvegi sé orðalag til þess fallið að stykja eignarréttarkröfur stórútgerðarinnar til sjávaruaðlindarinnar. Furðu má sæta hve andvaralausir fjölmiðlar eru almennt um þennan þátt málsins: Lögin segja eitt, lögskýringar og dómapraxís annað.

Fiskmarkaðir: Lífæð smærri fyrirtækjaarrow_forward
Í þættinum ræðir Ögmundur Jónasson við reynslumilka menn sem stýrt hafa smærri en mjög öflugum fiskvinnslufyrirtækjum, þá Aðalstein Finsen, eiganda Tor ehf í Hafnarfirði og Albert Svavarsson, sem stýrði Ísfiski í hálfan annan áratug. Þeir segja öfluga fiskmarkaði öllu máli skipta og vera grundvöll jafnræðis í greininni.