Reykjavíkurfréttir
Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.
Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Klippur
Reykjavíkurfréttir – Bókasöfn – Miklu meira en bækur
Við kíkjum í hljóðvarpsstúdíó þar sem Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá lýðræðisverkefnum borgarbókasafnsins. Svo kemur Barbara Guðnadóttir safnstjóri og segir …
Reykjavíkurfréttir – Þetta helst 30. janúar
Sanna og Adda ræða fréttir og mál vikunnar úr borginni.
Reykjavíkurfréttir – Sund er allra meina bót
Til okkar koma þjóðfræðingarnir Katrín Snorradóttir og Valdimar Tryggvi Hafstein sem voru að gefa frá sér bókina Sund sem fjallar …
Reykjavíkurfréttir – Þetta helst 16. janúar
Sanna og Andrea fara yfir fréttir vikunnar úr Borgarstjórn.
Þættir
Reykjavíkurfréttir – Mótmæli í borgarlandinuarrow_forward
Í þætti dagsins ræðum við um nýtingu almannarýmis til mótmæla og samstöðufunda og einblínum á nýlega viðburði í Reykjavík til stuðnings Palestínu. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland-Palestína kemur í þáttinn og ræðir við Sönnu Magdalenu og Halldóru um samstöðuaðgerðir og hvernig borgarrýmið nýtist til þess.
Reykjavíkurfréttir – Staðan í borginniarrow_forward
Í þætti dagsins ræðum við fjölbreytt mál sem hafa verið á dagskrá borgarstjórnar. Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir kafa ofan í umræðu í kringum tillögu Sósíalistaflokksins um að hætta við fyrirhugaðar sumarlokanir borgarbókasafna, tillögu um umboðsmann borgarbúa. Þá fjöllum við einnig um umræður um mótmæli í borgarlandi og tekju- eignamörk til að komast í íbúðir Félagsbústaða.
Reykjavíkurfréttir – Almenningsbókasöfnarrow_forward
Við ræðum fréttir vikunnar og fáum svo innsýn inn í almenningsbókasöfnin og mikilvægi þeirra. Við kíkjum í hljóðvarpsstúdíó þar sem Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá lýðræðisverkefnum. Svo kemur Barbara Guðnadóttir safnstjóri og segir okkur frá mikilvægi safnsins og félagslegu rými þess.
Reykjavíkurfréttir – Sundlaugar og fréttir vikunnararrow_forward
Við byrjum á því að fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað innan borgarinnar á síðustu dögum. Að því loknu ræðum við um sund, sundmenningu og jákvæð áhrif sundsins á andlega, félagslega- og líkamlega vellíðan. Til okkar koma þjóðfræðingarnir Katrín Snorradóttir og Valdimar Tryggvi Hafstein sem voru að gefa frá sér bókina Sund sem fjallar um þessa vinsæla iðju landsmanna. Hlíf Berglind Óskarsdóttir sem stundar sund daglega, Árni Jónsson forstöðumaður Laugardalslaugar og Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur og verkefnastýra vefsíðunnar Lifandi hefðir koma einnig til okkar til þess að ræða um sund. Skráning á sundlaugamenningu hér á landi hefur átt sér stað þar sem unnið er að því að tilnefna sundlaugamenningu á Íslandi á skrá Unesco um óáþreifanlegan menningararf.
Reykjavíkurfréttir – Útstrokun vinnuaflsins og hræddir valdhafararrow_forward
Í upphafi spjalla þær Andrea Helgadóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir sín á milli um það sem borið hefur á í umræðu og í borgarmálum þessa vikuna.
Andrea talar að því loknu við systkinin Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Bjarka Gunnar Halldórsson arkitekt um hvort og hvernig þau sjái einkenni þess að vinnuaflið sé ósýnilegt þegar horft er á samfélagið og umhverfið. Hvort einhver hluti almennings, eða einhver iðja almennings og borgarbúa hafi strokast út í íslensku borgar- eða samfélagsskipulagi. Andrea mun halda áfram að fjalla nánar um það þema í þáttunum á næstunni, við bjóðum hana velkomna í þáttargerðateymið.
Reykjavíkurfréttir – Fánar, fjármál og fundirarrow_forward
Í þætti dagsins fáum við kynningu á ýmsum málum borgarinnar, fjallað verður um stöðu aðgerðaráætlunar gegn rasisma í skóla- og frísundastarfi, fjárhagsáætlun, vetrarþjónustu og snjómokstur og loftslagsmálin innan borgarinnar í tengslum við óáreiðanlegar almennningssamgöngur. Þá fjöllum við um hvernig borgin geti sýnt samstöðu með stríðshrjáðum löndum með því að draga fána að húni og viðbrögð borgarinnar við Palestínska fánanum sem reistur var af aðgerðasinnum en fljótlega fjarlægður. Þetta og margt fleira í þætti dagsins með Andreu Helgadóttur og Sönnu Magdalena Mörtudóttur.
Reykjavíkurfréttir – Fjárhagsáætlun og AirBnBarrow_forward
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Andrea Helgadóttir borgar- og varaborgarfulltrúi Sósíalista fara yfir helstu fréttir úr borginni. Fjárhagsáætlunargerð stendur nú yfir og munum við fara yfir breytingartillögur Sósíalista. Þá koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda og Jón Ferdínand Estherarson sem situr í stjórn samtakanna til okkar og ræða um skaðsemi Airbnb og áhrif þess á leigumarkaðinn.
Reykjavíkurfréttir – Baslið í borginniarrow_forward
Í dag fáum við kynningu á nýútgefinni skýrslu ÖBÍ réttindasamtaka um húsnæðismál fatlaðs fólks. María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Kjartan Þór Ingason starfsmaður ÖBÍ koma til okkar og ræða þessi mál og hvað sveitarfélögin geti gert í þeim efnum. Í lokin heyrum við sögu Gunnhildar Hlöðversdóttur um háan húsnæðiskostnað en viðtal við hana birtist á Rauða borðinu fyrir um ári síðan þegar niðurstöður könnunar um slæma stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði var kynnt.
Reykjavíkurfréttir – Sorpið og pólitíkinarrow_forward
Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttur og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir helstu fréttir úr borginni. Teitur Atlason kemur og ræðir sorphirðu í borginni. Umræður verða síðan um stjórnmálaástandið í Reykjavík með góðum gestum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rýnir í nýjustu skoðanakönnun og fer yfir stöðuna ásamt Halldóri Auðar Svanssyni fyrrverandi borgarfulltrúa, Helgu Þórðardóttur varaborgarfulltrúa og Guðmundi Auðunssyni kosningastjóra sósíalista í borginni.
Reykjavíkurfréttir – Sunnutorg og skaðaminnkunarrow_forward
Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir málin í borginni, í Reykjavíkurfréttum. Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Ungra sósíalista kemur í stúdíóið og ræðir við okkur fréttir vikunnar. Eftir það skoðum við Sunnutorg og veltum því fyrir okkur hvað eigi að gera við þessa byggingu, sem hefur átt betri daga. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar – Félags um velferð og lífsgæði kvenna og Kristján Ernir frá Viðmóti – notendasamtökum, koma til okkar í þáttinn að ræða skaðaminnkun, þar sem áhersla er lögð á að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna. Við fjöllum einnig um hlutverk sveitarfélaga í þessum málefnum.