„Stjórnvöld hafa veikt tekjustofnana og svelt innviðina eins og blasir við þjóðinni í heilbrigðiskerfinu. Það er gert til að koma því í hendur einkaaðila,“ segði Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis á kjaramálaráðstefnu félagsins.
Þórarinn rifjaði upp orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra frá 17. júlí 2020: „Verðtryggingin var upphaflega sett á vegna þess að við réðum ekki við verðbólguna. Núna eru tímarnir breyttir. Í fyrsta sinn er það raunverulegur valkostur fyrir heimilin að skipta yfir í nafnvexti og þannig afnema verðtrygginguna að eigin frumkvæði af sínum lánum. Þetta eru mikil tímamót og fela í sér að verðtryggingin mun deyja út.“
„Í dag er staðan sú að kaupmáttur launa hefur dregist mikið saman, íbúðaverð hefur rokið upp í hæstu hæðir frá árinu 2018 þegar íbúðaverð, verðlag og kaupmáttur launa hélst nánast í hendur. Kaupmátturinn er á leið lóðbeint niður á við miðað við íbúðaverð og verðbólgan hefur valdið almenningi stórskaða,“ sagði Þórarinn og sagði stjórnvöld hafa skapað þennan vanda.
„Fólk sem lifir eingöngu á fjármagnstekjum tekur ekki þátt í samfélaginu því það greiðir ekki útsvar af fjármagnstekjum. Það greiðir ekki fyrir innviðina; vegina, skólana, leikskólana, velferðarkerfið o.fl. Þetta eru þeir ofurríku hér á landi sem stjórnvöld hlífa á meðan launafólki blæðir,“ bætti Þórarinn við.
Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga