Efling vill hækka lágmarkslaun í 535 þúsund krónur

Verkalýðsmál 31. okt 2022

Í kröfugerð Eflingar er farið fram á hækkun allra mánaðarlauna um samtals 167 þúsund krónur á þriggja ára samningstíma. Hækkunin verði krónutöluhækkun sem leggist jafnt á öll laun í þrepum, að fyrirmynd Lífskjarasamninganna.

Efling – stéttarfélag afhenti í dag Samtökum atvinnulífsins kröfugerð sem samþykkt var einróma á fundi samninganefndar félagsins í gær.

Í dag eru lágmarkslaun 368 þús. kr. 167 þúsund króna hækkar þau í 535 kr. Sá sem hefur slík laun fær um 396 þús. kr. útborgaðar í dag. Þetta á að verða raunin eftir þrjúr ár. Miðað við 5% verðbólgu á ári yfir þann tíma jafngildir þetta um 342 þús. kr. á núvirði.

Hækkun um 167 þús. kr. tryggir aukinn kaupmátt launa sem eru undir meðallaunum miðað við núverandi verðbólgu og verðbólguspár, auk þess að verja kaupmátt meðallauna.

Hluti þeirra hækkana sem krafist er snýr að því að leiðrétta það ástand að laun verka- og láglaunafólk dugi ekki til framfærslu samkvæmt opinberum viðmiðum. Með hækkunum kröfugerðarinnar er hlutdeild láglaunafólks í hagvexti tryggð, og spornað gegn launaskriði í efri lögum samfélagsins. Vísað er til jákvæðs árangurs af krónutöluhækkunum á samningstíma Lífskjarasamningsins.

Samninganefnd Eflingar hefur lagt mikla vinnu í undirbúning kröfugerðarinnar og hist á samtals fjórum fjölsóttum fundum síðastliðna viku. Þá hafa yfir 4500 Eflingarfélagar átt þátt í mótun kröfugerðar með þátttöku sinni í kjara- og viðhorfskönnun félagsins.

Fyrsti samningafundur Eflingar með Samtökum atvinnulífsins er áformaður næstkomandi föstudag í Félagsheimili Eflingar.

„Verkefni næstu þriggja ára er skýrt í okkar huga. Við ætlum að halda áfram á þeirri braut að ná fram kjarabótum fyrir félagsfólk Eflingar. Það þarf að verja launin okkar gegn verðhækkunum á lífsnauðsynjum og það þarf að vinda ofan af hallarekstri á heimilum láglunafólks. Leið krónutöluhækkana hefur sannað sig sem besta leiðin að þessum markmiðum. Algjör eining var meðal samninganefndar Eflingarfélaga um kröfugerðina,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sem jafnframt er formaður samninganefndar.

Kröfugerð í heild sinni á PDF formi.

Myndin er af námskeiði trúnaðarmanna í Eflingu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí