Meirihlutinn vísar tillögu um leiguþak frá

Borgarmál 4. okt 2022

Meirihlutinn í borginni vísaði í kvöld frá tillögu Sósíalista um Reykjavíkurborg skoraði á ríkisvaldið að setja á leigubremsu og leiguþak til verndar leigjendum. Auk Sósíalista greiddu fulltrúar Vg og Flokks fólksins atkvæðu gegn brottvísun tillögunnar.

„Í mannlegum samfélögum hefur húsnæði verið framleitt til þess að vera mannabústaðir ekki til þess að vera fjárfestingartæki fyrir eignafólk og fjármagnseigendur, sem í mörgum tilfellum eiga mikið meira en eitt þak yfir sitt höfuð, yfir bílinn sinn eða bílana? Sumarhúsaþök? Á meðan bílarnir fá sín eigin þök býr fullt af fólki með börnin sín jafnvel í iðnaðarhúsnæði. Húsnæði sem er ekkert gert fyrir manneskjur,“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi í umræðu um húsnæðismál í borgarstjórn. Og spurði: „Er ekki reglan að maður fer ekki og fær sér ábót fyrr en allir eru komnir með á diskinn?“

Tillaga Sósíalistanna var um borgin skoraði á ríkið að koma á leiguþaki og leigubremsu. Í tillögunni kom fram að 71% aðspurðra í nýlegri skoðanakönnun Maskínu voru mjög eða frekar hlynnt því að leiguþak yrði sett á húsaleigu hér á landi. Leiguþak felur í sér að hámarksleiguverð er gefið út á húsnæði miðað við stærð, gæði og staðsetningu. 72% aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því að leigubremsa yrði tekin upp. Með leigubremsu er um að ræða viðmið um hversu mikið húsaleiga megi hækka yfir ákveðið tímabil.

Fulltrúar sósíalista vildu ítreka mikilvægi þess að mæta þörfum leigjenda sem eru í erfiðri stöðu. Leiga hefur hækkað upp úr öllu valdi og leigjendur oft fastir á milli lágra tekna og okurleigu.

Meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn lögðu fram tillögu um að vísa tillögu Sósíalista frá. Það var samþykkt gegn atkvæðum tveggja Sósíalista og eins fulltrúa frá hvorum; Flokki fólksins og Vg. Sjálfstæðislfokksfólkið sat hjá.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí