Ólöf Helga vill bjarga ASÍ frá Ragnari Þór og Sólveigu Önnu

Verkalýðsmál 7. okt 2022

Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar og fyrrum formannsframbjóðandi þar, segist vilja forða Alþýðusambandinu og verkafólki frá forystu Ragnari Þór Ingólfssyni, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Vilhjálms Birgissonar og hefur því ákveðið að bjóða sig fram til forseta gegn Ragnari Þór. Drífa Snædal fagnar framboði Ólafar Helgu.

„Alþýðusam­band Íslands er eitt það dýr­mæt­asta sem launa­fólk á Íslandi á,“ segir Ólöf Helga í yfirlýsingu sinni. „Að setja það bar­áttu­laust í hend­ur fólks sem læt­ur eig­in valda­hags­muni ganga fyr­ir hags­mun­um al­menns fé­lags­fólks væri ámæl­is­vert. Ég hef því tekið þá ákvörðun að bjóða mig fram til for­seta ASÍ á þingi sam­bands­ins sem hefst nú á mánu­dag.“

Ólöf Helga bauð sig fram til formanns Eflingar snemma á þessu ári, fékk 38% atkvæða þegar Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörinn sem formaður á ný. Ólöf Helga var ritari stjórnar en varð varaformaður þegar Sólveig Anna sagði af sér og Agnieszka Ewa Ziólkowska varaformaður tók við formennsku. Eftir endurkjör Sólveigar Önnu gegna þær tvær sömu stöðu og áður, Agnieszka Ewa er varaformaður og Ólöf Helga varaformaður. Kosið verður um þessar stöður í Eflingu eftir áramótin.

„Þetta finnst mér góðar fréttir,“ skrifar Drífa Snædal, fyrrum forseti ASÍ, á Facebook. „Ég kynnist Ólöfu Helgu þegar hún fékk það yfirþyrmandi verkefni að stýra Eflingu ásamt Agnieszku eftir afsögn formanns. Þar sem starfsfólki leið illa og félagið var klofið í átökum. Ég dáðist að yfirvegun hennar, greind og þeirri staðreynd að hún lét hvorki mig né nokkurn annan segja sér hvernig hlutirnir væru eða ættu að vera heldur aflaði sér gagna og nýtti eigin dómgreind til að komast að niðurstöðu. Heiðarleg, réttsýn, vinnusöm og hokin af reynslu sem verkakona og trúnaðarmaður á vinnustað. Það er eðlilegt að fulltrúar vinnandi fólks á þingi ASÍ hafi val um kosti og enn sýnir Ólöf Helga kjarkinn sem í henni býr með þessu framboði.“

Kjarninn greindi frá því í gær að Agnieszka Ewa og Ólöf Helga hefðu fengið aðgengi að pósthólfum Sólveigar Önnu og Viðars Þórsteinssonar, fyrrum framkvæmdastjóra Eflingar, með fulltingi lögfræðings aðalskrifstofu Alþýðusambandsins, einmitt á tímanum sem Drífa vísar til, þegar hún kynntist Ólöfu Helgu.

„Að vita til þess að óheftur aðgangur hafi verið veittur, án athugasemda, án nokkurs eftirlits og án vitneskju Sólveigar Önnu og Viðars, og í þann tíma sem um ræðir, sem náði fram yfir endurkjör hennar og þess dags sem hún tók við að nýju sem formaður Eflingar er hrikalegt. Og án nokkurs vafa glæpsamlegt,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og mótframbjóðandi Ólafar Helgu til forseta ASÍ, á Facebook í morgun.

Í yfirlýsingu sinni lýsir Ólöf Helga þátttöku sinni í verkalýðsbaráttu, sem trúnaðarmaður hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli og sem stjórnarmaður í Eflingu. Hún sakar Sólveigu Önnu um að hafa hætt opinberum stuðningi við sig vegna pólitísk ágreinings.

„Nú vill Sól­veig Anna, í valda­banda­lagi við Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son og Vil­hjálm Birg­is­son, taka yfir Alþýðusam­band Íslands,“ segir Ólöf Helga í yfirlýsingunni. „Í gegn­um hópupp­sagn­ir á skrif­stofu Efl­ing­ar fórnuðu þau trú­verðug­leika verka­lýðshreyf­ing­ar­inn­ar og fé­lags­fólki fyr­ir eig­in valda­hags­muni. Óljóst er hvað þríeykið vill með sam­bandið. En það hef­ur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyr­ir aðrar skoðanir en sín­ar eig­in og vilja stjórna í krafti meiri­hlutaræðis. All­ir sem mót­mæla þeim fá yfir sig fúkyrðaflaum – og þegar önn­ur sjón­ar­mið eru sett fram er þeim mætt með hót­un­um og offorsi.“

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí