Sjúkrahússið á Akureyri þarf meira fjármagn

Heilbrigðismál 26. okt 2022

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri lýsir yfir þungum áhyggjum af framtíð Sjúkrahússins á Akureyri náist ekki að laga fjárhagsstöðu þess. Fagráðið telur að auka þurfi fjármagn til sjúkrahússins til þess að viðhalda þjónustu og þekkingu sem fyrir er og tryggja nauðsynlega framþróun starfseminnar.

Fagráð er þverfaglegt ráð sem skipað er fulltrúum ólíkra fagstétta innan sjúkrahússins. Það segir í yfirlýsingu að Sjúkrahúsið á Akureyri þjónusti stórt svæði á Norður- og Austurlandi. Íbúarnir treysta á öruggt aðgengi að þeirri fjölþættu þjónustu sem sjúkrahúsið veitir. Stækkandi ferðaþjónusta reiðir sig á aðgang að þjónustu SAk. Sjúkrahúsið er alþjóðlega gæðavottað og býr í dag yfir mannauði og þekkingu sem þarf að hlúa að, erfitt væri að vinna upp tap á mannauði væru einingar í þjónustu og starfsemi skertar. Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús Landspítala og þarf því ávallt að vera vel í stakk búið til þess að taka við sjúklingum þegar neyðarástand skapast, eins og sýndi sig í Covid faraldrinum.

Fagráð bendir á þann sparnað sem það er fyrir þjóðfélagið að fólk geti sótt sem mesta heilbrigðisþjónustu í heimabyggð eða nálægar byggðir. Enginn sparnaður er í því að flytja þjónustu sem nú er veitt á SAk yfir á Landspítalann. Af því hljótast óþægindi fyrir sjúklinga og aðstandur auk þess sem kostnaðurinn færist aðeins til milli eininga. Það er ekki í samræmi við heilbrigðisstefnu stjórnvalda.

Landsmenn allir þurfa á þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri að halda, segir fagráðið í yfirlýsingu sinni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí