Verkafólk hefur yfirgefið Samfylkinguna vegna andstöðu flokksins við harðari baráttu

Verkalýðsmál 7. okt 2022

„Ég held að verkafólk hafi losað sig úr faðmlagi Samfylkingarinnar og leitað að öðrum verndurum í hörðum heimi arðráns og almennra andstyggilegheita í garð vinnuaflsins m.a. vegna þess að Samfylkingin velur sér verkalýðs-leiðtoga úr hópi þeirra sem að eiginlega ekkert verkafólk veit hver eru, fólks sem að tekur aldrei til máls á opinberum vettvangi nema til að ráðast með lygum og svívirðingum að þeim verkalýðsleiðtogum, eins og Ragnari Þór, sem að hafa eitt síðustu árum í að berjast gegn spillingu, gegn sjálftöku yfirstéttarinnar, og fyrir réttlæti og jöfnuði í samfélagi okkar,“ skrifaði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, á Facebook. Tilefnið er fundur verkalýðsráðs með yfirskriftinni: Afhverju hefur verkafólk yfirgefið Samfylkinguna?

„Mig langar, vegna þess að ég er andstyggileg kvensnift og alræmd frekja, að blanda mér í flokks-vangaveltur Samfylkingarinnar, þrátt fyrir að ég sé ekki í flokknum og hafi aldrei verið, og stinga upp á þessu sem í það minnsta hluta af svarinu við hinni áleitnu spurningu,“ skrifar Sólveig Anna.

Sólveig bendir á að sama dag og fundur Verkalýðsráðsins var haldinn, birtist grein eftir forystufólk í nokkrum verkalýðsfélögum, eins og Samstöðin greindi frá, sjá hér: Formenn nokkurra félaga vilja ekki Ragnar Þór sem forseta.

„Innihaldið er annars vegar upptalning á glæpum mínum (ég er m.a. kölluð gerandi) en mesta púðrið fer í að ata Ragnar Þór formann VR, auri í auðvirðilegri tilraun til að ráðast að mannorði hans með sömu deleringunum og röflinu sem að þau hafa ástundað undanfarin misseri, því sem næst öllum (nema þeim sjálfum og fámennum hópi einfeldninga og sýkófanta) til því sem næst óbærilega mikils ama,“ skrifar Sólveig Anna.

Og heldur áfram: „Á meðal þeirra sem að undirrita greinina eru Ólöf Helga Adolfsdóttir, nánasta samverkakona Agnieszku Ewu en þær brutust saman inn í tölvupósthólf mitt, eins og fjallað var um í Kjarnanum í gær, Halldóra Sveinsdóttir, formaður stéttarfélagsins Bárunnar, og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga.“

Í lokin talar Sólveig Anna til Samfylkingarfólks: „Læknir, læknaðu sjálfan þig; Verkalýðsráð, ráðleggðu sjálfu þér; á meðan að Halldóra, Finnbogi og Agnieszka Ewa eru forysta verkafólks í Samfylkingunni held ég að við mjög mörg sem að tilheyrum stétt verkafólks treystum okkur til að fullyrða: Verkafólk mun halda áfram að yfirgefa ykkur og sennilega af endurnýjuðum þrótti, nú þegar að þið hafið ákveðið að taka ykkur stöðu með rógberum og glæpunum, og gegn þeim fólki eins og Ragnari Þór, vinsælum og farsælum leiðtoga sem hefur sýnt og sannað að hann getur náð raunverulegum árangri í raunverulegri baráttu.

Þegar ég var lítil sagði mamma mín mér oft söguna af stelpunni sem pissaði í buxurnar og sagði svo þegar hún var spurð afhverju hún væri svona blaut: „Ég dast í poll.“ Þegar ég sá færslu Verkalýðsráðs Samfylkingarinnar um hinn existensíalíska fund „Afhverju elskar okkur enginn?“ og svo færsluna um grein hinna miklu verkalýðs-leiðtoga og meðlima ráðsins varð mér hugsað til stelpunnar í sögunni hennar mömmu, sem að hlaut sjálf að vita að hún hafði pissað í buxurnar en kaus samt að horfa framan í heiminn og segja, meðan að pissu-lyktin varð meiri og meiri og öll vissu að lyktin var af henni: „Ég dast í poll“.“

Myndin er af verkalýðsráði Samfylkingarinnar. Talið frá vinstri: Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar, Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Gylfi Þór Gíslason, fyrrverandi stjórnarmaður í Landssambandi lögreglumanna, Halldóra S. Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags og Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Rafiðnaðarsambands Íslands og 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí