Vonin um umbætur á ASÍ er úti

Verkalýðsmál 11. okt 2022

„Allur íslenskur almenningur veit, sér og skilur að ný forysta hefur rutt sér til rúms innan verkalýðshreyfingarinnar,“ skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar eftir að hafa gengið af þingi Alþýðusambandsins. „Eini aðilinn á Íslandi sem þykist ekki vita, sjá og skilja er Alþýðusamband Íslands. Þar hefur grimmur andstöðuhópur rekið linnulausan skemmdarverkahernað gegn okkur árum saman. Þar er allt leyfilegt.“

„Í dag er mér ljóst að vonin um umbætur á ASÍ er úti,“ skrifar Sólveig. „Í forystu ASÍ getur ekki átt erindi nein manneskja sem vill af heilum hug berjast fyrir bættum kjörum almennings á Íslandi. Þær manneskjur verða að leita annað.

Mér er ekki gleði í huga, en ég fagna engu að síður tækifærinu til að halda áfram uppbyggingu á baráttu launafólks annars staðar. Ég býð öllum sem vilja sjá breytingar, umbætur og bætt kjör almennings á Íslandi að halda út í veröld nýrra möguleika, veröld vonar og veröld sigra.“

„Ásakanir, hótanir, persónuverndarbrot, óhróður – ekkert er of lágkúrulegt fyrir þennan hóp en þó er honum ofviða að standa fyrir máli sínu þegar kemur að málefnalegum ágreiningi,“ skrifar Sólveig Anna. „Jafnvel þótt að í þessum hópi séu engir fulltrúar sem að nokkur heilvita manneskja getur látið sér detta í hug að hafi burði til að leiða baráttu vinnandi fólks á þessu landi, þá ætlar þessi hópur ekki að leyfa að forysta ASÍ verði látin endurspegla breytta tíma í hreyfingunni.“

Og áfram: „Í hugarheimi þessa hóps má hið sjálfsagða, sanngjarna og eðlilega ekki gerast – að lýðræðislega kjörnir, þaulreyndir og hæfir leiðtogar nýrra afla fái að veljast til forystu ASÍ á þingi þess. Það þarf að stoppa með öllum leiðum, hvort sem það er með því að krefjast brottreksturs allra þingfulltrúa Eflingar af þinginu eða með því að stilla upp augljóslega vanhæfum einstaklingum til veigamestu embætta sambandsins.“

„Nú eru liðin fjögur ár frá byltingu minni og B-listans í Eflingu og fimm ár frá byltingu Ragnars Þórs í VR,“ skrifar Sólveig Anna. „Við höfum eftir það verið skoruð á hólm á vettvangi félaga okkar með ýmsum leiðum en alltaf staðið uppi sem sigurvegarar. Ég og Ragnar höfum myndað sterka fylkingu með öðrum leiðtogum í hreyfingunni. Einn okkar öflugasti bandamaður er Vilhjálmur Birgisson, sannur leiðtogi verkafólks, sem í dag er formaður Starfsgreinasambandsins.“

Sólveig heldur áfram: „Saman höfum ég, Vilhjálmur og Ragnar leitt risavaxin verkefni á sviði kjarasamningagerðar til farsælla lykta. Það á við um Lífskjarasamningana 2019 en einnig erfiða samninga við stóra viðsemjendur á borð við Reykjavíkurborg. Við stóðum gegn tilraunum stjórnvalda og atvinnurekenda til að skerða kjör almennings í Covid19-kreppunni. Við höfum óhrædd troðið nýjar slóðir í umræðunni um fjármálakerfið, húsnæðismál og lífeyrissjóðina. Við höfum talað tæpitungulaust um kjör hinna lægst launuðu, um brotastarfsemi á vinnumarkaði og við höfum krafist jöfnuðar með krónutöluhækkunum launa.“

Rætt verður við Sólveigu Önnu við Rauða borðið í kvöld.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí