ASÍ minnist verkamanna sem létust vegna HM í Katar

Verkalýðsmál 17. nóv 2022

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hvetur landsmenn alla, og áhugafólk um knattspyrnu sérstaklega, til að gleyma ekki þeim fórnum sem farandverkafólk færði við byggingu mannvirkja og annan undirbúning vegna heimsmeistaramóts í knattspyrnu karla í Katar.

Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar. Í henni segir að talið sé að 6.500 manns hafi týnt lífi við störf tengd undirbúningi mótsins. Raunverulegur fjöldi liggur ekki fyrir því stjórnvöld í Katar hafa reynst með öllu ófáanleg að veita upplýsingar um mannfórnirnar. Miðstjórnin bendir á að Katar sé einræðisríki þar sem engin mannréttindi séu virt og það hafu ekki verið fyrr en eftir þrýsting frá Alþjóðavinnumálastofnuninni, Alþjóðasambandi verkalýðsfélaga og öðrum samtökum sem stjórnvöld þar í landi féllust loks á að gera nokkra bragarbót á yfirgengilegum aðbúnaði farandverkafólks sem kunnungir líktu við þrælahald.

„Furðu vakti á sínum tíma er Katar varð fyrir valinu til að halda HM í knattspyrnu,“ segir í ályktuninni. „Sú undrun kom ekki einvörðungu til af þeirri staðreynd að Katar á sér enga hefð á sviði knattspyrnu og loftslag þar hentar íþróttinni sérlega illa. Strax þá var á það bent að bygging mannvirkja í landinu vegna heimsmeistaramótsins myndi kalla á mikinn aðflutning verkafólks sem starfa myndi við hræðilegar aðstæður og einskis réttar njóta. Þau varnaðarorð létu leiðtogar alþjóðlegrar knattspyrnu sem vind um eyru þjóta. Nú liggur fyrir að þessi hörmulegi spádómur reyndist því miður réttur.“

„Mótið í Katar er áminning um hvernig málum er komið innan Alþjóða knattspyrnusambandsins,“ heldur álykunin áfram. „Þar ráða peningarnir för með tilheyrandi græðgi og spillingu. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lætur í ljós þá von að sú bylgja vandlætingar sem nú fer um heimsbyggðina í aðdraganda mótsins í Katar verði til þess að siðvæðing eigi sér stað á vettvangi knattspyrnunnar og að landssambönd samþykki aldrei aftur að mótið verði haldið í ríki þar sem mannréttindi eru fótum troðin og blóði fólks úthellt án minnstu iðrunar. Við skulum sameinast um þessa kröfu gagnvart íslenskum stjórnvöldum og forystufólki í íþróttum.

Um leið ættu blóðvellirnir í Katar að vera okkur öllum áminning um að ekki er gefið að almenningur njóti þeirra réttinda og verndar sem Íslendingar hafa borið gæfu til að sameinast um. Í því samhengi skal minnt á mannréttindabaráttu á Vesturlöndum og varðstöðu samtaka, sambanda og félaga um þau gildi. Verkalýðshreyfingin hefur ásamt öðrum staðið þar í broddi fylkingar til að tryggja kjörin, auka réttinn og verja mannlega reisn. Reynslan kennir að baráttu gegn ofríki fjármagns og tilraunum valdastétta til að grafa undan réttindum launafólks lýkur aldrei.

Alþýðusambandið mun á meðan HM í Katar fer fram minna á þau grófu mannréttindabrot sem framin voru í tengslum við mótið. Jafnframt verður leitast við að halda á lofti minningu þeirra þúsunda sem týndu lífi við að gera kleift að halda heimsmeistarakeppnina í þessu einræðisríki afturhalds og spillingar. Minna má það ekki vera.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí