Berjast gegn ákvörðun borgarinnar um lokun unglingasmiðja

Velunnarar unglingasmiðjanna Stígs og Traðar berjast nú fyrir að borgarstjórn dragi til baka samþykkt sína um að loka smiðjunum. Unglingasmiðjurnar hafa verið starfræktar áratugum saman og sýnt statt og stöðugt fram á mikilvægi þeirra fyrir félagslega einangruð ungmenni, segir í yfirlýsingu þeirra sem mótmælum harðlega áformum Reykjavíkurborgar um að leggja niður starfsemina.

Félagsskapurinn, sem kallar sig Verndara Stígs og Traðar, hefur efnt til undirskriftasöfnunar. Í yfirlýsingu sem fylgir segir að sumir krakkanna upplifi það í fyrsta sinn í langan tíma þegar þau koma í smiðjurnar að eiga jákvæð samskipti við jafnaldra, að eignast vini og að tilheyra.

„Reynslan sýnir okkur hversu mikilvægt það er fyrir þennan hóp ungmenna að eiga einhvern stað, einskonar öruggt rými, þar sem þau eru samþykkt í hópi jafnaldra, þar sem þátttaka þeirra skiptir hópinn máli og þau fá að skrifa sögu sína upp á nýtt,“ segir í yfirlýsingunni. „Mörg þeirra hafa upplifað einelti og er það oft ein ástæða þess að þau sækja ekki í félagsskap í sínu nærumhverfi, hvort sem er í skóla eða félagsmiðstöð. Í gegnum tíðina hafa Unglingasmiðjurnar gegnt mikilvægu hlutverki fyrir fjölmörg ungmenni, á meðan þau byggja upp traust á ný og æfa sig í samskiptum, efla færnina og sjálfstraustið sem leiðir til virkni og þátttöku í þeirra nærumhverfi.“

Hægt er að skrifa undir þessa yfirlýsingu hér: Stöðvum fyrirhugaða lokun unglingasmiðjanna Stígs og Traðar.

Rætt var við Belindu Karlsdóttur við Rauða borðið um Stíg og Tröð í vikunni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí