Hvetja fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Velferð dýra 12. des 2022

Samtök um dýravelferð á Íslandi standa að vitundarvakningu í desember gegn verksmiðjubúskap í svínarækt. Samtökin vilja vekja athygli á slæmri meðferð svína í matvælaiðnaði og hvetja fólk til að sleppa hamborgarhryggnum þessi jól. Með því að hafna kjöti sem verður til við óásættanlegar aðstæður segja samtökin að framleiðendur fái skýr skilaboð um að hverfa til búskapar þar sem betur er búið að dýrunum.

„Meirihluti dýra í íslenskum landbúnaði kannast ekkert við landið sitt,“ skrifar Harpa Kristbergsdóttir félagi í Samtökum um dýravelferð á Íslandi í grein á Vísi. „Í þeirra heimi er engin náttúra, ekkert veður og engin vorkoma. Blæbrigði árstíðanna eru þeim hulin. Þau þekkja jafnvel ekki mun á nóttu og degi. Sjá ekki sólina eða anda að sér fersku lofti. Ekki eins og önnur húsdýr sem fá þó sum að lifa lífinu með snefil af frelsi, sjálfstæði og reisn. Þó ekki sé nema sumarlangt. Þau þekkja ekki bæjarhlaðið, túnin, himininn, fjöllin og þjóðvegina sem við ferðumst eftir, bendum og segjum hestar og kýr… en aldrei svín.“

„Langflest svín, líkt og varphænur og kjúklingar, á Íslandi eyða ævinni inni í verksmiðjubúum,“ skrifar Harpa áfram. „Það sem við skömmtum þeim af heiminum rúmast inni í einni hrjóstugri skemmu með steinsteyptu gólfi. Ég ætlaði að skrifa að þar fengju þau einungis að ferðast innanhúss en það á auðvitað bara við um þau sem ekki eru föst í litlum búrum eða gotstíum. Þau kvendýr fá ekki einu sinni að hreyfa sig úr stað.“

Og áfram heldur greinin: „Huldudýrin í skemmunum eru tilfinningaverur sem geta fundið til gleði, sorgar, örvæntingar, andlegs sársauka, ótta, einmanaleika, samkenndar og söknuðar, rétt eins og við. Þau búa yfir sjálfsmeðvitund og rökhugsun. Þau hafa sinn eigin einstaka persónuleika og þeim er alls ekki sama um örlög sín. Rannsakendur við Cambridge háskóla leiddu í ljós að svín búa yfir greind á við þriggja ára börn, sem þýðir að þau eru gáfaðri en hundar. Þau geta lært táknmál, spilað tölvuleiki og leyst þrautir álíka vel og simpansar. Svín eru félagslynd, forvitin og klár. Úti við þykir þeim gaman að fara í eltingaleik, gamnislag og láta sig rúlla niður brekkur. Grísir eru einstaklega leikglaðir og hafa mikla hreyfiþörf. Þeir dilla halanum eins og hundar þegar þeir eru glaðir en í verksmiðjubúskap er halinn klipptur af þeim án deyfingar. Það er vegna þess að þeir hafa ekkert fyrir stafni og í örvæntingarfullum leiðindunum taka þeir upp á að naga halann á hvor öðrum. Þeir hafa ekkert annað að gera.

Rannsóknir á dýrum eru alltaf að leiða betur og betur í ljós tilfinningalega og vitsmunalega dýpt þeirra, sem áður var vísindaheiminum hulin. Þó dýr séu ekki nákvæmlega eins og við mannfólkið þá séu þau í raun mjög svipuð okkur. Þeir þættir heilans sem sjá um úrvinnslu tilfinninga eru til dæmis sameiginlegir hjá spendýrum. Dýr geta þróað með sér geðsjúkdóma sem eru sláandi líkir þeim sem hrjá menn og þau bregðast við sömu geðlyfjum. Munurinn á mönnum og dýrum er ekki eins afgerandi og áður var talið. Þessi þekking ætti að knýja okkur til þess að endurhugsa meðferð okkar á dýrum. Illa meðferð þeirra eða slæman aðbúnað er aldrei hægt að réttlæta með því að þetta séu skynlausar skepnur. Öll dýr eiga skilið líf sem er þess virði að lifa.

Við höfum vald til að enda verksmiðjubúskap. Það er í okkar valdi að kaupa ekki afurðir frá þessum búum. En það þarf líka lagabreytingar og ætti í raun ekki að þurfa meira en að taka út loðið orðalag í dýraverndarlögunum sem tóku gildi 2013 þar sem dýr voru loks viðurkennd sem skyni gæddar verur. Í lögunum segir að umhverfi dýra skuli vera þannig, eftir því sem við á, að þau geti athafnað sig, hreyft sig, hvílst, notið útivistar, beitar eða viðhaft annað atferli sem þeim er eðlilegt „eftir því sem við á” og „eftir því sem unnt er”. Orðalag sem býr til grá svæði fyrir ræktendur dýra. Það er óljóst hvort þeir þurfi að sækja um sérstaka undanþágu frá lögunum eða hvort þeim sé í sjálfvald sett hvort það eigi við að dýrin geti viðhaft eðlilegt atferli sitt. Það geta þau svo sannarlega ekki í verksmiðjubúunum þar sem þau eyða ævinni í meiri firringu en við getum gert okkur í hugarlund. Þar sem innilokun, leiðindi, eirðarleysi og þjáning er það eina sem lífið hefur upp á bjóða.“

Lesa má grein Hörpu hér: Þarf alltaf að vera svín?

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí