Sósíalistar segja Aðalsteini að víkja

Verkalýðsmál 28. jan 2023

Sósíalistar samþykktu á félagsfundi sínum áðan að Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari ætti að draga miðlunartillögu sína til baka og víkja sem sáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Vafi leikur á lögmæti tillögunnar en ljóst er að hún brýtur hefðir og stangast á við hugmyndir almennings um sanngirni.

Félagsfundur Sósíalistaflokksins var haldinn í eftirmiðdaginn. Megin verkefni fundarins var að afgreiða mennta- og listastefnu flokksins, en í lok fundarins var eftirfarandi ályktun borin upp og samþykkt.

Ályktun félagsfundar Sósíalistaflokks Íslands

Félagsfundur Sósíalistaflokks Íslands fordæmir framgöngu Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara í kjaradeilu láglaunafólksins í Eflingu við samtök fyrirtækjaeigenda. Á síðasta ári kaus ríkissáttasemjari að leggja alla áhersla á að ganga frá samningum við önnur félög en láta kjaradeilu Eflingar sitja á hakanum. Þegar Efling sætti sig ekki við þá samninga lagði sáttasemjari fram tilboð Samtaka atvinnulífsins sem sína miðlunartillögu. Freistar með því að þröngva tilboði SA upp á Eflingu.

Öll helstu samtök launafólks hafa lýst yfir efasemdum um lögmæti miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Lögmætið má leggja fyrir dómstóla. En það er ljóst að tillagan stangast á við hefðir í kjaradeilum og hún brýtur gegn hugmyndum almennings um sanngirni, að ríkissáttasemjari taki upp tilboð annars deiluaðila og neyði það upp á hinn. Með miðlunartillögunni hefur Aðalsteinn því misst traust launafólks. Honum ber því að draga tillögu sína til baka og segja af sér, í það minnsta víkja sem ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og SA.

Stéttabarátta láglaunafólks er mikilvæg mannréttindabarátta sem verður að fá að brjótast fram. Þetta er barátta fólks sem berst fyrir því að fá laun fyrir vinnu sína sem duga fyrir framfærslu fjölskyldna. Barátta láglaunafólks á fyrri tíð byggði upp allt það besta í samfélagi okkar í dag. Án hennar væri samfélagið mótað að öllu leyti að kröfum fjármagns- og fyrirtækjaeigenda.

Blinda ríkissáttasemjara fyrir mikilvægi kjaradeilu Eflingarfólks í dag sýnir að hann er vanhæfur til að stýra viðræðum fátæks launafólks gagnvart þeim sem það selur vinnuafl sitt.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí