„Ætla stjórnvöld enn og aftur að horfa átölulaust á þetta ofbeldi sem leigjendur þurfa að þola?“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að hækkun á leigu sé orðin glæpsamleg. Á Facebook fer hann yfir mál einstæðar móður en leiga hennar hefur hækkað á stuttum tíma úr 190 þúsund krónum í 267 þúsund krónur. Vilhjálmur spyr hveru lengi munu stjórnvöld horfa upp á þetta ofbeldi.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Vilhjálms í heild sinni.

Ég sagði frá því fyrir ári síðan að einstæð móðir hefði sent mér tölvupóst um að Alma leigufélag hefði verið að hækka hjá henni leiguna um 31.000 krónur en leigan fór úr 199.000 kr. í 225.000 kr.

En rétt er að geta þess að þessir leigusamningar hjá Ölmu leigufélagi eru vísitölutengdir og hækka því í hverjum einasta mánuði.

Nú fékk þessi sama einstæða móðir tilkynningu frá Ölmu leigufélagi um að enn og aftur eigi að hækka leiguna hjá henni. En bara verðtrygging á leigusamningnum hennar hefur gert það að verkum að  leigan hefur hækkað úr 225.000 kr. í 245.289 kr. eða sem nemur 9% á 12 mánaða tímabili.

Þessi vísitöluhækkun er ekki nóg fyrir Ölmu leigufélag því nú hefur henni verið tilkynnt að ef hún vilji endurnýja leigusamninginn þá fari leigan í 267.000 kr. á mánuði og hefur leigan því hækkað á 12 mánuðum um 42.000 kr. Eða sem nemur tæpum 19% eða um 10% meira en neysluvísitalan hefur hækkað um síðustu 12 mánuði.

Þessi einstæða móðir hefur leigt hjá Ölmu í 2 ár en í byrjun leigði hún á 190.000 kr. og núna tveimur árum seinna er leigan að fara í 267.000 kr. og hefur því hækkað um 77.000 kr. á mánuði eða sem nemur 40,5% sem er langt umfram hækkun á vísitölunni.

Ég spyr ætla stjórnvöld enn og aftur að horfa átölulaust á þetta ofbeldi sem leigjendur þurfa að þola án þess að grípa til aðgerða til hjálpar þessu fólki? Aðgerðaleysi þeirra gagnvart leigjendum og vanda heimilanna er æpandi.

Ég spyr líka hvernig Festa lífeyrissjóður hafi yfir höfuð haft samvisku til að fjárfesta fyrir 3 milljarða í leigufélagi sem níðist svona á leigjendum. En eftir því sem ég best veit er þessi einstæða móðir að greiða til Festu lífeyrissjóðs. En rétt er að geta þess að félagsmenn VLFA greiða flestir til Festu lífeyrissjóðs og ég krefst þess að lífeyrissjóðurinn selji þessi skuldabréf í þessu leigufélagi.

Ég krefst þess einnig að stjórnvöld komi leigjendum og heimilum þessa lands til aðstoðar án tafar því það verður að stoppa af þessa græðgivæðingu sem tröllríður íslensku viðskiptalífi

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí