Ragnar segir Elvu ljúga upp á sig í Morgunblaðinu

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir á Facebook að mótframbjóðandi hans til formanns VR, Elva Hrönn Hjartardóttir, sé að ljúga upp á hann í viðtali sem Morgunblaðið birtir. Ragnar lítur svo á að Elva láti að því liggja í viðtalinu að hann hafi hótað henni og sagt að hún ætti ekki afturkvæmt til vinnu hjá VR ef hún myndi tapa kosningunum.

Ragnar segir þetta alrangt og hið rétt sé að hún hafi sjálf tekið fram að hún myndi láta af störfum eftir kosningar. Elva Hrönn segir á hinn boginn í samtali við Samstöðina að Ragnar sé að mistúlka orð hennar. Hún hafi aðeins talað um stjórnendur í viðtalinu og Ragnar sé ekki stjórnandi hennar.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Ragnars Þórs í heild sinni.

Mótframbjóðandi minn til formanns VR lætur að því liggja í viðtali við morgunblaðið að ég hafi gert henni það ljóst að hún ætti ekki afturkvæmt til vinnu ef hún tapaði í kosningu til formanns. Ekkert er fjarri sanni í þeim efnum og reyndar var það þannig að þegar hún tilkynnti mér að hún ætlaði að bjóða sig fram tók hún það skýrt fram, að fyrra bragði, að hún myndi láta af störfum fari kosningin ekki á hennar veg.

Svo því sé haldið til haga, og þarf ég líklega ekki að taka það fram, þá er starf formanns VR undir á tveggja ára fresti hjá félaginu. Ég hef hins vegar ekki haft hugmyndarflug í að nota það sem sérstakt kosningamál hvorki nú né nokkurn tíma. Og það sama má örugglega segja um kjörna fulltrúa almennt.

Starf forystufólks í stéttarfélögum snýst fyrst og síðast um hagsmuni félagsfólks. Ég kalla eftir frekari innsýn í þau málefni, lausnir og hugmyndir sem mótframbjóðandi minn hefur fram að færa heldur en að dylgja um að ég eða aðrir hafi með einhverjum hætti ógnað starfsöryggi hennar persónulega, sem er fjarri sanni.

Framundan eru mikilvægustu kjaraviðræður síðari ára. Framtíð og afkomuöryggi fólks á húsnæðismarkaði er undir. Stökkbreytt húsnæðislán, há verðbólga, hrikalegur leigumarkaður og hækkandi verðlag.

Viðræður um nýjan langtíma kjarasamning eru komnar á fullt og því skiptir máli að félagsfólk geti valið hvaða fólki það treystir best til að leiða það verkefni, að verja og bæta lífskjör okkar næstu árin og til framtíðar. Um það snýst málið.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí