Umboðsmaður spyr Bjarna um bankasöluna til pabba hans

Umboðsmaður Alþingi vill fá svör frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hvort og þá með hvaða hætti reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi hafi verið fullnægt að því er snertir söluna á hlutum ríkisins í Íslandsbanka til Hafsilfurs ehf., sem er félag í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna.

Í tilkynningu frá umboðsmanni kemur fram að í kjölfar þess að Alþingi lauk umfjöllun sinni um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hafi umboðsmaður óskað eftir tilteknum skýringum og upplýsingum frá fjármálaráðherra um söluna.

„Almennt fjallar umboðsmaður ekki um mál samtímis því sem þau eru til meðferðar hjá Alþingi á grundvelli eftirlitshlutverks þess og hefur því haldið að sér höndum vegna málsins fram að þessu,“ segir umboðsmaður.

Í bréfi umboðsmanns til fjármálaráðherra sem sent var í gær kemur fram að ekki verði ráðið að í skýrslu Ríkisendurskoðunar hafi verið fjallað sérstaklega um sölu á hlutum í Íslandsbanka til Hafsilfurs ehf., félags í eigu föður ráðherra, eða álitamál um hæfi hans í því sambandi.

„Þá verði ekki heldur séð að með umfjöllun sinni um skýrsluna hafi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tekið rökstudda afstöðu til slíkra atriða,“ segir í bréfi umboðsmanns. „Bent er á að hinum sérstöku hæfisreglum stjórnsýslulaga sé ekki aðeins ætlað að koma í veg fyrir að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á efni stjórnvaldsákvarðana heldur sé þeim einnig ætlað að stuðla að því að almenningur og hlutaðeigandi geti treyst því að stjórnvöld leysi úr málum á hlutlægan hátt.

Óskar umboðsmaður því eftir að fjármálaráðherra upplýsi og skýri hvort og þá með hvaða hætti reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi hafi verið fullnægt að því er snertir söluna á hlutum ríkisins í bankanum til Hafsilfurs ehf. Einnig er spurt hvort og þá hvernig undirbúningi sölumeðferðar hlutar ríkisins í Íslandsbanka hafi verið hagað þannig að tryggt væri að gætt yrði reglna stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi þegar kæmi að ákvörðunum ráðherra um hvort tilboð skyldu samþykkt eða þeim hafnað. Þá er óskað rökstuddrar afstöðu ráðherra til þess hvort og þá að hvaða marki hann hafi sem ráðherra borið lagalega og stjórnskipulega ábyrgð á því að söluferlið færi fram í samræmi við lög,“ segir í tilkynningunni.

Bjarni fær frest til 25. mars. til að svara.

Myndin er af Skúla Magnússyni umboðsmanni og Bjarna Benediktssyni ráðherra.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí