Þetta eru skólarnir þar sem BSRB fer í verkfall á næstu vikum

Verkföll aðildarfélaga BSRB eru hafin í sveitarfélögum landsins utan Reykjavíkur. Verföllin standa yfir í dag og hálfan dag á morgun. Þeim verður fram haldið í næstu viku og fram til 9. júní.

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, hitti í morgun starfsfólk grunnskóla Seltjarnarness vegna verkfallsins og sagði mikinn baráttug og samstöðu vera í hópnum. Félagsfólk í Sameyki sem starfar í grunnskóla Seltjarnarness eru í verkfalli heilan dag í dag og hálfan dag á morgun til að byrja með, en verkfall heldur svo áfram í næstu viku.

Hjá öðrum aðildarfélögum BSRB leggur starfsfólk niður vinnu á leikskólum í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ og í grunnskólum Kópavogs og Mosfellsbæjar. Í Mosfellsbæ er einnig verkfall hjá starfsfólki sem starfar á frístundaheimilum.

Fundir samninganefndar með ríkissáttasemjara hafa ekki borið neinn árangur. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir það vera vegna skorts á samningsvilja af hálfu sambandsins. Hún sagði í samtali við fjölmiðla að markmið BSBR er að gera kjarasamning, en að grípa til aðgerða sé neyðarúrræði. Þá sagði hún mikil vonbrigði að Samband íslenskra sýni engan samningsvilja.

Sonja Ýr segir að í grunninn sé BSRB að krefjast leiðréttingar á misrétti í launum félagsfólks síns gagnvart fólki sem er í öðrum stéttarfélögum og telur það vera brot á jafnréttislögum. Krafa BSRB er sú að launafólk aðildarfélaganna fái sömu laun og samið hefur verið um fyrir aðra starfsmenn sem vinna sömu eða sambærileg störf og að sú launahækkun miði við 1. janúar eins og hjá öðrum, en ekki 1. apríl eins og sveitafélögin gera kröfu um. Eins og áður sagði hafa fundir hjá Ríkissáttasemjara ekki skilað neinum árangri og ekki hefur verið boðað til annars fundar hjá embættinu.

VR styður verkfallsaðgerðir BSRB
Stjórn VR lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir félaga í BSRB. Félagsfólk aðildarfélaga í BSRB krefst jafnréttis á vinnumarkaði, sömu launa og annað launafólk fyrir sama eða sambærilegt starf. Jafnrétti er ein grundvallarkrafa verkalýðshreyfingarinnar og VR styður þær aðgerðir sem BSRB telur nauðsynlegar til að knýja það fram, segir á vef félagsins.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit verkfalla BSRB.

Frétt af vef Sameykis.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí