Kjarasamningur BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Verkalýðsmál 19. jún 2023

Atkvæðagreiðslum um kjarasamning ellefu aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk á hádegi í dag, mánudaginn 19. júní. Mikill meirihluti samþykkti samninginn hjá þeim ellefu aðildarfélögum BSRB sem samningurinn nær til:

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, 95,92% samþykktu
FOSS – stéttarfélag í almannaþjónustu, 90,33% samþykktu
Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, 91,7% samþykktu
Starfsmannafélag Garðabæjar: 88,54% samþykktu
Starfsmannafélag Suðurnesja, 94,16% samþykktu
Starfsmannafélag Vestmannaeyja, 95,1% samþykktu
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, 90,83% samþykktu
Starfsmannafélag Kópavogs, 92% samþykktu
Starfsmannafélag Húsavíkur, 93,33% samþykktu
Starfsmannafélag Hafnafjarðar, 91,02% samþykktu
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu (Seltjarnarnes og Akranes), 87,96% samþykktu

Mánaðarlaun hækka samkvæmt samningi um að lágmarki 35.000 kr. og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 kr. Samkomulag náðist einnig um sáttagreiðslu að upphæð 105.000, auk þess sem var samið um hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

„Niðurstaðan er afgerandi og endurspeglar að félagsfólk er hóflega sátt með þennan samning. Það er óþolandi að það hafi þurft svo umfangsmiklar aðgerðir til að ná fram réttlátum og sanngjörnum kröfum þeirra. Verkföllin skiluðu þó meira en kjarabótum því þau sýndu sveitarfélögunum svart á hvítu hversu ómissandi starfsfólk þeirra er. Með þessum kjarasamningum var tekið skref í rétta átt til að launin endurspegli raunverulegt verðmæti þeirra starfa – en baráttan heldur áfram og við höfum þegar hafið undirbúning fyrir gerð næstu kjarasamninga.“ Sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um niðurstöðurnar.

Frétt af vef BSRB.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí