Leigjendur á Kjalarnesi fá uppsagnarbréfið

Allir leigjendur Heimstaden á Kjalarnesi hafa fengið uppsagnarbréf. Þetta fullyrðir einn íbúi þar innan Facebook-hópsins Umræðuhópur leigjenda. Sænska leigufélagið, sem á um 1700 íbúðir á Íslandi, tilkynnti nýlega að það ætlaði að hætta starfsemi á Íslandi.

„Jæja, þar kom að því Heimstaden að afhenda öllum leigjendum hér á Kjalarnesi uppsagnarbréfin. Hér eru 24 íbúðir í þeirra eigu og búið í öllum,“ segir kona nokkur sem leigði hjá félaginu.

Fyrir um mánuði greindi Samstöðin frá því að sumir leigjendur hjá Heimstaden hefðu fengið uppsagnarbréf. Þeir sem fengu uppsagnarbréf bjuggu flestir ýmist á Selfossi eða Ásbrú. Þegar Heimstaden tilkynnti að það myndi hætta starfsemi á Íslandi var talað um að félagið myndi selja allar eignir. Málið virðist þó eitthvað flóknara, í það minnsta hyggst félagið ekki ætla að selja þær allar samstundis.

Í uppsagnarbréfi, sem kona nokkur frá Selfossi fékk á dögunum, var þetta orðað svo: „Líkt og fram kom í tilkynningu frá Heimstaden þann 10. maí sl. hefur félagið ákveðið að minna eignasafnið sitt á Íslandi. Íbúðin sem þú ert með á leigu er hluti þeirra eigna sem Heimstaden hyggst selja úr safni sínu.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí