Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segist tilbúin að taka Hannes Hólmstein Gissurarson, fyrrverandi prófessor við sama skóla, í kennslustund. Mörgum þykir að Hannes hafi farið yfir strikið í gær þegar hann reyndi að gagnrýna skrif hennar en gerði nafn hennar að aðalatriði.
Sjá einnig: Pawel segir Hannes hafa farið yfir strikið: „Er þetta ekki einn af þessum statusum sem maður fjarlægir?“
Sema Erla segir á Facebook að skrif Hannesar einkennist af úldnu innræti. „Það er merkilegt að sjá hvernig Hannes talar um fyrrverandi nemanda sinn og síðar kollega innan Háskóla Íslands. Svona orðræða lýsir auðvitað engu öðru en innræti þess sem skrifar og miðað við framferði Hannesar á samfélagsmiðlum að undanförnu held ég að það sé frekar úldið,“ skrifar Sema Erla.
Hún segist þó þrátt fyrir þetta tilbúin að taka sinn gamla kennara í kennslustund. „Ég hef þó áhyggjur af hugtakaskilningi mannsins þar sem hann talar um umburðarlyndi gagnvart minnihlutahópum í sömu málsgrein og hann viðrar menningarfordóma, íslamófóbíu og kvenfyrirlitningu. Er kannski kominn tími á að minn gamli kennari komi í kennslustund hjá mér?“