Í leiðara Morgunblaðsins í dag er það sagt berum orðum að slíkt sé óþol Sjálfstæðismanna á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að það muni valda stjórnarslitum. Einnig er fullyrt að það sé ekki í raun vegna málefnaágrening, heldur sé það persónulegt. Hatur Sjálfstæðismanna á Svandísi sé kominn á það stig að þeir muni ekki styðja neitt frumvarp sem hún leggur til. Því sé stjórnin í raun dauðadæmd.
Líklegt er að Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins, haldi um penna. Það vekur einnig athygli í leiðaranum að engin tilraun er gerð til þess að setja væntanleg stjórnarslit í samhengi við málefni. Davíð fullyrðir einfaldlega að þetta sé persónulegt en ekki byggt á stjórnmálaskoðunum. Davíð vísar í pistil Óla Björns Kárasonar, þingflokksformanns Sjálfstæðismanna, en nánar má lesa um hann hér.
„Það er þó ekki allt í himnalagi á stjórnarheimilinu, líkt og Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðismanna, lýsti af nokkrum þunga í grein hér á opnunni fyrr í mánuðinum. Ekki vegna málefnaágreinings – hann er alltaf einhver – heldur vegna ögrana, óbilgirni og óheilinda Svandísar Svavarsdóttur. Að óbreyttu er erfitt að sjá nokkurt frumvarp hennar komast úr þingflokkum stjórnarliðsins í haust og þá verður þessu skjóthætt,“ segir Davíð.
Hann virðist þó ekki hafa gefið upp alla von um að ríkisstjórnin geti haltrað fram að kosningum. „Standi vilji til þess að halda samstarfinu áfram þurfa forystumenn ríkisstjórnarinnar að bera klæði á vopnin nú þegar og svo hafa þeir fram að hausti að ganga tryggilega frá framhaldinu. Það gerist ekki af sjálfu sér.“