Setur að Jóni hroll þegar hann les skrif Svandísar: „Hún hlýtur að vera illa lesin“

Jón Kristjánsson fiskifræðingur segir að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hljóti að hafa annað hvort slæma ráðgjafa eða vera illa að sér. Þetta segir Jón í pistli sem hann birtir á Facebook. Tilefnið er pistill sem Svandís skrifar og birti í Morgunblaðinu. Þar talar Svandís um að varúðarnálgun hafi gefið vel í fiskveiðstjórnun. Jón var gestur Rauða borðsins síðastliðinn febrúar og má horfa á það viðtal hér neðst.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Jóns í heild sinni.

Var að lesa grein, sem æðsti ráðamaður auðlindarinnar skrifaði í Moggann sl. laugardag, 19. ágúst. Hún er full af fáfræði og trúarbrögðum. Svandís vísar í Huxley, en á hans tíma voru ekki til aðferðir til að mæla stofna með einhverri nákvæmni, frekar en nú. Stofnar þorsks og annara hvítfiska fóru ekki að minnka fyrr en farið var að stjórna veiðum á áttunda áratugnum. David H. Cushing sagði 1970 að þegar haldið væri að rýrnun fiskstofna væri vegna ofveiði væri það í flestum tilfellum vegna vanveiði, og skapaðist af röngu hlutfalli fæðu og fiskafjölda.

Síldin sem hvarf og var byggð upp aftur? Úr hverju? Fornleifauppgröftur í Svíþjóð hefur sýnt að síldarstofnar hafa sveiflast í 50 ára takti í aldir. Þá hafa borkjarnarannsóknir í Kyrrahafi sýnt svipað, miklar sveiflur í ansíósu löngu áður en farið var að veiða hana. Sveiflur í fiskstofnum eru eðlilegt fyrirbrigði og eina leiðin til að draga úr þeim er að halda uppi mikilli sókn.

Árangur varúðarstjórnar? Jú, hann er sá að han er farinn úr 450 þús. í áratuga óstjórn í um 200 þús. tonn eftir 40 ára vísindalega stjórn. Hefur Svandís ekki lesið sér til um þetta? Þá segir hún að enn sé gátunni um slakari nýliðun þorsks eftir 1980 ósvarað.

Eftir að kvótakerfi var tekið upp og farið var að takmarka mjög afla fóru áhrifin að koma fram 1988 þegar nýliðun þorsks minnkaði all verulega og hefur haldist lág síðan. Frá 1964-1988 var meðal nýliðun þorsks 220 milljónir 3 ára þorska. En meðaltalið frá 1988 til dagsins í dag er um 150 milljónir þorska. Hvernig stendur á þessu?

Ég hélt fyrirlestur fyrir Svandísi og stóru nefndina 17. apríl sl. og setti fram eftirfarandi tilgátu að skýringu:

Ein af vísdómssetningunum í banka Hafró hefur löngum verið að stór hrygningarstofn gefi meiri nýliðun en lítill, þess vegna sé um að gera að hafa hann sem stærstan. Fyrir um 10 árum fór hrygningarstofn þorsks að stækka, þökk sé makrílnum. Árið 2018 var hann orðinn stærri en hann hafði verið frá 1963. Hann er orðinn um þrisvar sinnum stærri en hann var löngum á níunda og tíunda áratugnum. En nýliðunin lætur standa á sér. Hvernig má það vera? Til þess að ungviðið komist upp verða að vera til þess skilyrði. Fiskstofnar geta ekki stækkað endalaust. Ef stofninn er stór er orðið þröngt á þingi og mikil samkeppni um mat. Þess vegna er erfitt fyrir ungviðið að komast á legg.

Í greininni sagði Svandís einnig: „Ef fiskifræðingar vanmeta stofn þýðir það meiri afla í framtíðinni. Ofmeti þeir stofnana þýðir það að áfallið verður minna í framtíðinni ef engar hömlur hefðu verið. Augljóst er (hverjum?) að betra er að vanmeta stofn en ofmeta, það er ástæðan fyrir því að varúðarnálgun við stjórnun fiskveiða er skynsamleg nálgun.“

Hvað er hún að reyna að segja? Að það gefist vel að geyma fisk í sjó þar sem hann bíður afhroð vegna samkeppni, fóðurskorts eða verður étinn? Það setur nú að mér hroll þegar ég heyri þetta, hún hlýtur að vera illa lesin og hafa slæma ráðgjafa. Ætlar dellan að halda áfram endalaust?

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí