Óli Björn fagnar skattalækkunum Bjarna sem leiddu til aukinnar vaxtabyrði og sölu eigna

„Rót­tæk­ar breyt­ing­ar á tekju­skatt­s­kerfi ein­stak­linga í tíð Bjarna Bene­dikts­son­ar í fjár­málaráðuneyt­inu hafa leitt til þess að ein­stak­ling­ar greiða á þessu ári um 61 millj­arði króna minna í tekju­skatt en þeir hefðu gert að óbreyttu,“ skrifar Óli Björn Kárason, fyrrum þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í Mogga dagsins og byggir á svari Bjarna Benediktssonar, fyrrum fjármálaráðherra til þingsins um skattabreytingar frá 2013 þegar hann tók við.

Óli Björn segir svo: „Þetta jafn­gild­ir að ein­stak­ling­ar greiði að meðaltali um fimm millj­örðum lægri tekju­skatt í hverj­um mánuði,“ og lætur í það skína að almenningur hafi notið þessara skattabreytinga. Sé t.d. miðað við 6. launaflokk Starfsgreinasambandsins þá hafa skattar fólks á þeim lágu launum ekki lækkað heldur hækkað á þess tímabili. Það eru aðrir en launafólk sem hefur notið góðs af lækkun skatta hjá Bjarna og Sjálfstæðisflokknum.

Skattabreytingar Bjarna er helstar lækkun bankaskatts, afnám auðlegðarskatts, lækkun tolla og mikil endurgreiðsla á tekjuskatti fyrirtækja. Þetta eru allt lækkanir sem koma hinum efnameiri til góða, ríkustu fjármagnseigendunum og stærstu eigendum stærstu fyrirtækjanna.

Bjarni vill halda því fram að lækkun bankaskatts hafi lækkað lánakostnað almennings en enginn annar trúir því. Þvert á móti er augljóst að lækkun skattsins jók aðeins hagnað bankanna. Sama má segja um lækkun tolla og aðflutningsgjalda. Afleiðing þeirra breytingar var betri afkoma heildsala og smásala, ekki lækkun verðlags, enda glíma Íslendingar við svokallaða græðgisverðbólgu sem drifin er áfram af okri fákeppnisfyrirtækja.

En afleiðing þessara skattalækkana lendir á almenningi. Bjarni hefur lækkað skatta á hin ríku og skilið gat eftir á ríkissjóði, svipað og Liz Truss vildi gera þá skömmu tíð sem hún var forsætisráðherra Bretlands. Bretar höfnuðu þeirri efnahagsstjórn, að réttlætanlegt væri að lækka skatta á hin ríku án þess að fjármagna þá lækkun, með öðru en trúarsetningum um að skattalækkanir á hin ríku myndu á endanum skila sér til allra í formi blómlegs samfélags. Í Bretlandi sá fólk að slíkt myndi leiða til verðbólgu og grafa undan efnahag allra annarra en hinna ríku. Og Bretar köstuðu Liz Truss og stjórn hennar af sér.

Íslendingar hafa ekki losað sig við Bjarna Benediktsson. Hann þurfti reyndar að segja af sér í fjármálaráðuneytinu vegna endalauss klúðurs við sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Íslandsbanka, sem hann þurfti að selja til að fylla upp í gatið sem skattalækkun til hinna ríku skyldi eftir sig. Og Bjarni fór ekki langt, yfir í utanríkisráðuneytið og setti varaformann sinn í fjármálaráðuneytið til að framfylgja stefnu sinni áfram.

Ef við tökum yfirstandandi ár sem dæmi, þá væri ekki halli á fjárlögum yfirstandandi árs ef Bjarni hefði ekki lækkað skatta á hin ríku. Og afgangur á næsta ári, möguleiki á að hefja niðurgreiðslu skulda og draga úr vaxtakostnaði, sem er 88 milljarðar króna á þessu ári. Þetta má orða öðru vísi. Ef Bjarni hefði ekki lækkað skatta á hin ríku væru vaxtagreiðslur ekki að sliga ríkissjóðs og þrengja að möguleikum á að byggja hér upp gott samfélag fyrir allan almenning.

Og það væri heldur ekki brýn þörf að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka, að mati Bjarna og félaga. Ástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn vill selja hlut almennings í bankanum er annars vegar hugmyndafræðileg. Flokkurinn vill koma eigum almennings til auðvaldsins. En hins vegar afleiðing af óstjórn Bjarna á ríkissjóði, afleiðing þess að hann hefur gefið frá sér tekjur af sköttum á fjármagns og fyrirtæki sem hefur skilið eftir gat á ríkissjóði. Og lausnin sem Bjarni og félagar sjá er að selja eignir. Og þá rennur andvirðið til að fjármagna skattalækkanir til hinna ríku, sem er ástæðan fyrir gatinu á ríkissjóði.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí