Lögreglumaður í Reykjavík sakaður um hrottaskap

Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af Héraðssaksóknara fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Lögreglumaðurinn er sagður hafa beitt jafnaldra sinn hrottalegu ofbeldi við handtöku í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn maí. Mjög sjaldgæft er að meint ofbeldi lögreglumanna á Íslandi fari fyrir dómara.

Lögreglumaðurinn er sakaður um að hafa ítrekað beitt úðavopni, sparkað í vinstri fótlegg mannsins án þess að hann veitti mótþróa og síðan slegið hann fjórum sinnum með kylfu þar sem hann lá á fjórum fótum.

Málið verður tekið fyrir við Héraðsdóm Reykjavíkur en brotaþolinn fer fram á tvær milljónir í miskabætur.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí