Brynjar kominn með atvinnubótavinnu hjá hinu opinbera

Brynjar Níelssson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á það sameiginlegt með mörgum Sjálfstæðismönnum að geta illa fótað sig á hinum frjálsa markaði. Það virðist nánast regla að menn eins og hann þurfi að fá störf hjá hinu opinbera, nokkuð sem hann skrifar langa pistla gegn ef það á við um aðra en hann. Á Twitter segja gárungar að Brynjar sé kominn með atvinnubótavinnu.

Heimildin greinir frá því að Brynjar sé kominn með vinnu hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu en þar tók Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins , nýlega til starfa. Það var eftir að Bjarni Benediktson, formaður flokksins, þurfti að segja af sér með skömm.

Heimildin greinir frá því að Brynjar hafi hafið störf í október og renni ráðningartími hans út í lok maí. Þar mun hann vinna við frumvarpsgerð og önnur verkefni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí