Beið kvalin í viku á Íslandi – Fór til Spánar og komin í aðgerð 3 tímum síðar

Nú er sú tíðin að nær annar hver Íslendingur býr eða ferðast til Spánar. Því fylgir að sumir verða svo óheppnir að slasast eða veikjast og þurfa þá að leita á náðir spænska heilbrigðiskerfisins. Samanburðurinn við það íslenska er oft sláandi en þó Ísland eigi að vera ríkara þjóðfélag, þá er nokkuð ljóst að það heilbrigðiskerfið hér á landi beri ekki þess merki.

 Munurinn verður varla meira sláandi en sá sem Oddur Magnús greinir frá á Facebook. Hann segir að eiginkona sín, Fanney Gísladóttir, hafi þurft að bíða sárkvalin í viku eftir þjónustu og stóð frammi fyrir því að þurfa að bíða enn lengur. Þau létu ekki bjóða sér það lengur og fóru því til Spánar. Þrem tímum síðar var hún komin í aðgerð.  Oddur Magnús birtir mynd af Fanney og skrifar:

„HAllÓ ER ÞETTA VIRKILEGA RAUNVERULEIKINN Í DAG?! Konan mín fór til Íslands og var svo óheppin að fótbrotna í hálku á fyrsta degi.  Var flutt með sjúkrabíl á slysadeild  og ljós kemur að hún er ílla brotin.  Hún er sett í bráðabirgða gips og sagt að fara heim. Eftir að vera búin að liggja brotin og mikið kvalinn í viku heima hjá vinafólki og enþá að bíða eftir því að komast í aðgerð var haft samband við spítalann,  NEi   ÞÚ ERT  EKKI EINUSINI KOMIN Á BLAР MÍN KONA GAFST UPP  og flaug beint heim til Spánar og er komin í aðgerð aðeins 3 tímum síðar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí