Jón Gnarr varð meira en hissa þegar hann heyrði af forsetaframboði Katrínar

Jón Gnarr forsetaframbjóðandi segir í viðtali á Samstöðinni í kvöld að forsetakosningarnar séu þegar orðnar sögulegar, pólitískar og sérkennilegar vegna framboðs forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur.

Hann segist hafa talið það fáránlega hugmynd þegar hann heyrði fyrst ávæning af framboði Katrínar.

„Hún er með tögl og hagldir í forsætisráðuneytinu og gefur það frá sér í táknrænt valdalaust embætti uppi á Álftanesi,“ segir Jón.

Hnnsegist ekki hafa  orðið meira hissa þótt Guðni Th myndi sjálfur bjóða sig fram á ný!

Eigi að síður sé hann glaður og þakklátur og hlakki til ferlisins fram undan.

Sjá klippu úr Rauða borðinu sem hefst á Samstöðinni klukkan 20 í kvöld.

Rauða borðið: Jón Gnarr (youtube.com)

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí