„Tilhæfulausar kærur manna eins og Einars S. Hálfdánarsonar skipta engu máli“

Líkt og Samstöðin greindi frá fyrr í dag þá var það Einar S. Hálfdánarson sem kærði tvær konur til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vegna fjársöfnunar Solaris-samtakanna, sem unnið hefur að björgun Palestínumanna. Önnur þeirra, Sema Erla Serdaroglu, segir í pistli sem hún birtir á Facebook nú síðdegis að kæra hans sé tilhæfulaus. Hún segir enn fremur að þökk sé íslenskum sjálfboðaliðum sem hafa verið í launalausri vinnu fyrir utanríkisþjónustu Íslands, munu meira en 150 palestínskir einstaklingar sameinast fjölskyldum sínum á Íslandi.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Semu Erlu í heild sinni.

Þessa dagana eru sjálfboðaliðar á vegum Solaris í Kaíró að vinna þrekvirki við að taka á móti fjölda Palestínufólks sem er að flýja þjóðarmorð á Gaza. Um er að ræða einstaklinga, mest konur og börn, sem öll eru með dvalarleyfi á Íslandi, en voru skilin eftir á Gaza af íslenskum stjörnvöldum!

Fyrir mánuði síðan kom hópur af palestínufólki með dvalarleyfi á Íslandi frá Gaza til landsins í fylgd íslenskra stjórnvalda. Sama dag tilkynnti utanríkisráðuneytið að sendinefnd ríkisins á svæðinu hefði lokið störfum. Síðan þá hefur palestínskum dvalarleyfishöfum fjölgað og ráðherrar í ríkisstjórn Íslands forðast að svara spurningum um hvort sækja eigi fólkið.

Þökk sé öllum þeim þúsundum einstaklinga sem studdu landssöfnun fyrir Palestínu hefur sjálboðaliðum tekist að koma þeim dvalarleyfishöfum sem við vitum um og skildir voru eftir, um 50 einstaklingum, á útgöngulista á landamærum Palestínu og Egyptalands síðustu vikur! Um er að ræða einstaklinga sem eru með nákvæmlega sömu réttindi til dvalar á Íslandi og þau sem sótt voru af stjórnvöldum.

Hluti af hópnum er þegar kominm til Íslands! Fleiri úr þeim hópi bíða þess nú í að koma til Íslands frá Kaíró og von er á enn fleirum út af Gaza á næstu dögum! Þar sem engin viðvera íslenskra stjórnvalda er á svæðinu vinna sjálfboðaliðar dag og nótt við að taka á móti fólki, koma því undir læknishendur og út á flugvöll.

Þessir einstaklingar bætast við þá rúmlega 100 palestínsku einstaklinga sem íslenskir sjálfboðaliðar höfðu þegar aðstoðað við að  koma undan þjóðernishreinsunum á Gaza þegar íslensk stjórnvöld neyddust til þess að bregðast við, amk í smá stund.

Íslenskir sjálfboðaliðar hafa nú verið í Kaíró í tvo mánuði í launalausri vinnu fyrir utanríkisþjónustu Íslands við að koma fólki undan þjóðarmorði.

Vegna samtakamáttar Íslendinga munu meira en 150 palestínskir einstaklingar sameinast fjölskyldum sínum á Íslandi, fjarri ítrekuðum fjöldamorðum og árásum síonista. Vegna stuðnings íslensks almennings á fjöldi palestínskra barna framtíðina fyrir sér!

Þetta er það eina sem skiptir máli og um þetta eiga fréttir allra fjölmiðla á Íslandi að snúast.

Pólitískar ofsóknir og algjörlega tilhæfulausar kærur manna eins og Einars S. Hálfdánarsonar skipta engu máli í stóru myndinni. Þær eru hins vegar fyrst og fremst merki um tilraun manna með sterk tengsl við valdakerfið til að eyðileggja orðspor fólks, hafa af því lífsviðurværið og valda því skaða, allt í þeim tilgangi að stöðva baráttuna fyrir mannréttindum.

Við leyfum því ekki að hafa áhrif á okkar störf og höldum mannréttindabaráttunni ótrauð áfram.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí