Ekkert annað en baktjaldamakk og slóttugir samningar að baki framboði Katrínar

Jón Steinar Gunnlaugsson, Sjálfstæðismaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, segir að svo virðist sem ekkert annað en baktjaldamakk liggi að baki forsetaframboði Katrínar Jakobsdóttur. Hann segir að í raun geti ekkert annað útskýrt nokkuð furðulegan stuðning Sjálfstæðismanna og Morgunblaðsins við framboð hennar. Þar til að hann komast að þessari niðurstöðu var Jón Steinar nokkuð undrandi yfir þessum stuðningi annarra Sjálfstæðismanna.

„Í gær skrifaði ég á fasbók pistil um „afrek“ Katrínar Jakobsdóttur í stjórnmálasögu undanfarinna ára og áratuga. Kom þar fram að ég teldi hana hafa verið eindreginn sameignarsinna og að gjörðir hennar hefðu verið í beinni andstöðu við stefnumál Sjálfstæðisflokksins um frelsi, ábyrgð og takmörkuð ríkisafskipti. Síðustu árin hefði hún af hálfu Vinstri grænna stýrt óvinsælli ríkisstjórn með aðild þessara tveggja flokka og komist þar upp með gjörðir sem samstarfsflokkurinn ætti alls ekki að hafa þolað. Lýsti ég m.a. undrun minni á að forystumenn Sjálfstæðismanna hefðu nú hver af öðrum lýst stuðningi sínum við forsetaframboð Katrínar, þar sem þessi viðhorf hennar væru líkleg til að hafa áhrif á gjörðir hennar í forsetaembættinu. Við greiningu á fylgi hennar í könnunum hefur komið fram að kjósendur Sjálfstæðisflokksins væru stærsti pólitíski hópurinn sem styður hana,“ skrifar Jón Steinar á Facebook.

Han segist svo skyndilega áttað sig á því hvernig landið liggur. „Svo laust allt í einu niður í höfuð mér skýringin á þessu furðuverki. Hér lágu slóttugir samningar að baki. Að því er Katrínu snerti var orðið ljóst að hún og flokkur hennar myndi fá hroðalega útkomu í Alþingiskosningum sem haldnar verða á næsta ári. Metnaðarfull konan vissi að hún myndi eiga erfitt með að sætta sig við slík örlög. Fyrirsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins áttuðu sig líka á að þeirra biði afhroð í kosningunum framundan nema þeim tækist að gera breytingar á stöðunni þannig að kosningabaráttan yrði vænlegri,“ segir Jón Steinar og heldur áfram:

„Og var nú ekki sjálfsagt að semja? Katrín færi í forsetaframboð en Bjarni formaður íhaldsins forsætisráðherrastólinn. Þetta myndi henta báðum. Til þess að þetta gengi upp yrðu Sjálfstæðismennirnir að lofa Katrínu stuðningi í forsetakjörinu. Og það hefur gengið eftir. Morgunblaðið hefur greinilega tekið þátt í þessum slægvitru brögðum, því ekki verður annað séð en það styðji Katrínu til forsetakjörs svo undarlegt sem það er. Og forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa sýnilega gert ráðstafanir til að fá stuðningsmenn sína til að kjósa Katrínu til forseta.“

Að lokum spyr Jón Steinar hvort  þetta sé í raun og veru það sem þjóðin vill. „Er þetta það sem þjóðin vill? Baktjaldamakk til að tryggja sem best stöðu óvinsælla stjórnmálamanna? Ég skora á fjölmiðla að beina spurningum til þessara þátttakenda í makkinu um þetta, því vonir ættu að standa til þess að fæstir þeirra vilji taka áhættuna af að svara með ósannindum.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí