Forsetaefni fjalla um forsetavald í beinni útsendingu

Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stendur fyrir hádegismálþingi með frambjóðendum til embættis forseta Íslands þar sem rætt verður um beitingu valds forseta auk þess sem tekið verður við spurningum úr sal.

Níu frambjóðendur verða á pallborði: Arnar Þór Jónsson, Ástþór Magnússon, Baldur Þórhallsson, Eiríkur Ingi Jóhannsson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Helga Þórisdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Viktor Traustason. Þeir frambjóðendur sem mæta ekki eru: Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Jón Gnarr.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, mun annast fundarstjórn en hún er doktor í lögum og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti.

Netútsendingu Lögréttu má nálgast hér: https://vimeo.com/event/4284888/embed/interaction

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí