Halla Tómasdóttir er með forystu í nýrri könnun Prósent með 23,5%, hækkar um 3,3 prósentur frá mánudeginum. Prósent sýnir sambærilega sveiflu og mældist í könnun Maskínu sem birt var fyrr í dag. Og Prósent sýnir líka minna fylgi Baldurs Þórhallssonar og Jóns Gnarr. Baldur lækkar úr 16,9% í 14,6% á þessum dögum og Jón úr 11,4% í 9,0%.
Það er minni sveifla hjá Katrínu Jakobsdóttir. Hún mælist nú með 22,2% en var með 20,1% á mánudaginn, bætir við sig 2,1 prósentum. Halla Hrund Logadóttir er með 22,0% nú en mældist með 21,0% á mánudaginn.
Af þessum tveimur könnunum má ráða að helstu breytingar í vikunni hafa verið fylgisveifla frá Baldri og Jóni til Höllu Tómasdóttur fyrst og fremst. Prósent mælir eilitla aukningu hjá Katrínu en Maskína ekki. Og Maskína mæli smá sveiflu til Höllu Hrundar en Prósent minni.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward