Segir marga kjósa Katrínu óbeint – með því að kjósa ekki taktískt

Reynir Böðvarsson, jarðskjálftafræðingur í Uppsölum í Svíþjóð, segir að allt stefni í það að margir muni kjósa Katrínu Jakobsdóttur, flestir þó óbeint. Með því á hann við að vegna þess að atkvæði virðast ætla að dreifast á svo marga frambjóðendur, þá stefni í að Katrín verði kjörin forseti með jafnvel ekki meira fylgi en um 20 prósent. Í pistli sem Reynir birtir á Facebook hvetur hann þá sem vilja ekki Katrínu að sammælast um einn frambjóðanda, en sjálfur leggur hann til að sá frambjóðandi verði Halla Hrund Logadóttir.

Hér fyrir neðan má lesa pistil hans í heild sinni.

Flestir munu kjósa Katrínu Jakobsdóttur, beint eða óbeint, ef…

Þær eru þrjár sem mælast efst í skoðanakönnunum. Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir og Katrín Jakobsdóttir. Baldur Þórhallsson virðist ekki ná flugi og Jón Gnarr er án efa út úr leiknum. Ef fer sem horfir og ef kjósendur þrjóskast við og halda fast við sinn kandídat þá er nokkuð gefið að Katrín Jakobsdóttir vinnur þessar kosningar, líklegast með minna en 30% fylgi. Semsagt 70+% kjósenda hefðu kosið einhvern annan en hana. Þetta á náttúrulega líka við um alla aðra  frambjóðendur sem fá flest atkvæði þegar dreifingin er svona stór. Katrín Jakobsdóttir á sér þó  nokkra sérstöðu, margir vilja hana enganvegin sem forseta vegna skyndilegs afgangs sem forsætisráðherra en líklega þó mest vegna þess að hún lyfti óvinsælasta stjórnmálamanni sögunnar á Íslandi í forsætisráðherrastól, Bjarna Benediktssyni. Margir eru þeir sem geta einfaldlega ekki hugsað sér hana sem forseta en geta sætt sig við tvo eða þrjá af hinum frambjóðendunum. Þar sem bæði Jón Gnarr og Baldur eru líklegast ekki með í leiknum lengur þá eru það Höllurnar tvær sem valið stendur um auk Katrínar. Þrjár mjög frambærilegar konur en….

Við erum líka mörg sem getum ekki hugsað okkur Höllu Tómasdóttur í þetta embætti, við viljum einfaldlega ekki fulltrúa peningavaldsins á Bessastaði. Á sama hátt og andstæðingar framboðs Katrínar Jakobsdóttur benda á fortíð hennar í stjórnmálum bendum við á fortíð Höllu Tómasdóttur í viðskiptalífinu. Við getum einfaldlega ekki sætt okkur við að manneskja með þessa fortíð,  grundvallar sjónarmið og hvað varðar val á samstarfsmönnum meðal annars, fái aðgang að þeim (stökk)palli sem þetta embætti augljóslega er. Við viljum manneskju sem er ein af okkur, sem við getum borið okkur saman við og við getum treyst. Við þurfum ekki endilega vel smurðan munn sölumennsku stjórnmála eða viðskipta, við þurfum manneskju sem kemur úr okkar röðum sem við finnum nærveru við, jafnvel þegar hún er á skjánum.

Halla Hrund Logadóttir er þessi manneskja og er að mínu mati eini frambjóðandinn sem hefur möguleika á að sigra Katrínu Jakobsdóttur í þessum kosningum. Þeir sem velja að setja kross við einhvern hinna framjóðendanna er í rauninni, þótt óbeint sé, að kjósa Katrínu Jakobsdóttur sem forseta Íslands. Ég hef persónulega ekki mikið á móti því, Katrín er náttúrulega óvenju hæf í þetta embætti, en ég veit að margir eiga erfitt með að sjá sitt atkvæði falla á hana og þá get ég bent þeim á hæfasta og besta frambóðandann sem er náttúrulega að Halla Hrund Logadóttir.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí