Talsmenn NATÓ í raun að boða fylgispekt við allt sem Bandaríkjastjórn segir og gerir

Síðustu misseri hafa þeir sem vilja íslenskan her eða aukna þátttöku þjóðarinnar á vígvöllum heimsins verið talsvert meira áberandi í þjóðfélagsumræðu. Yfirleitt er hervæðing þjóðarinnar sett í samhengi við að þjóðin sé að valda NATÓ vonbrigðum. Oftast einnig sett í samhengi við Úkraínustríðið, þó að erfitt sé að sjá hvernig mannfall Íslendinga í Austur-Úkraínu hafi nokkur raunveruleg áhrif til eða frá á stríðið. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, segir í nýbirtum pistli að þeir sem tala fyrir að Íslandi verði „sterkur bandamaður“, séu í raun að boða enn meiri fylgispekt við allt sem Bandaríkjastjórn segir og gerir.“

Ögmundur setur þetta í samhengi við forsetakosningarnar en áberandi margir frambjóðendur eru harðlínu NATÓ-fólk, eða í það minnsta talað á þeim nótum. „Í tengslum við forsetakosningarnar hefur sprottið umræða um það hvort Ísland geti, og þá að hvaða marki, haft aðrar áherslur en hernaðarbandalagið NATÓ í þeim utanríkismálum sem lúta að stríði og friði. Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur þráfaldlega minnt á það sjónarmið sitt í samhengi þessarar umræðu að okkur séu mikil takmörk sett vegna veru okkar í NATÓ,“ segir Ögmundur og vitnar í orð Katrínar með Morgunblaðsmönnum á Akureyri

„Eins og ítrekað hefur komið fram hjá mér í þessari kosningabaráttu, raunar ólíkt sumum öðrum frambjóðendum, þá geri ég mér grein fyrir því að Ísland er ekki hlutlaust land.“ [Því valdi aðildin að NATÓ.]

Ögmundur telur fulla ástæðu til að efast um þetta. „Það er nú það. Um þetta hefur verið deilt í áranna rás, ekki bara á Íslandi heldur um NATÓ-heiminn allan og ekki minni maður en Dwight D. Eisenhower, fyrrum Bandaríkjaforseti, varaði við því, sem frægt varð, að láta hernaðaröflin, the military industrial complex, stýra för í afstöðu okkar til stríðs og friðar. Þessi fyrrum yfirhershöfðingi úr heimsstyrjöldinni síðari gerði sér grein fyrir togstreitunni, gagnstæðum sjónarmiðum sem tækjust á við stefnumótun á þessu sviði,“ segir Ögmundur.

Líkt og fyrr segir þá bendir Ögmundur á að í raun sé NATÓ fyrst og fremst hernaðarbandalag utan um utanríkisstefnu Bandaríkjanna. „Ákvarðanir um hernaðaruppbyggingu á Íslandi og fylgispekt við allt það sem NATÓ segir og gerir, og nánast allt sem Bandaríkjastjórn segir og gerir, hefur verið einkennandi fyrir utanríkisstefnu Íslands síðustu árin. Og nú þegar við heyrum eina ferðina enn að svona hljóti þetta að eiga að vera, er ástæða – aftur eina ferðina enn – að hreyfa andmælum,“ segir Ögmundur og bætir við að lokum:

„Vitað er að auðveldast er að fljóta með straumnum eins og gert hefur verið, styggja engan í góðra vinahópnum, jafnvel taka undir og hvetja til dáða. Nákvæmlega það hefur verið gert á undanförnum árum enda ekki staðið á lofi og prísi frá stríðshaukum. Auðvitað þykjast allir alltaf hafa verið friðarsinnar og aldrei viljað annað en frið. En eitt er að láta slíkt í veðri vaka á yfirborðinu, annað hvað gert er þegar til kastanna kemur og taka þarf afstöðu til einstakra mála, stuðningi við stríðsrekstur eða friðarumleitanir.

Það er ekki alltaf þægilegt að synda á móti straumnum. En þegar það hins vegar er gert er ekki að sökum að spyrja, straumurinn fer að taka aðra stefnu. Vilji menn beina kröftum sínum inn í friðsamlega farvegi, af þeirri háskabraut sem heimurinn er óvéfengjanlega núna á, þá er það hægt.

Ef við bara þorum og viljum, þá getum við. Hefur þetta ekki verið orðað þannig?“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí