Náttúruverndarsamtök Íslands hafa skorað á Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, að innleiða tafarlaust, og framfylgja af staðfestu, skilyrðislausu banni við notkun svartolíu, að því er fram kemur í bréfi sem samtökin hafa sent ráðherranum.
Mogginn sagði fyrst frá.
Benda samtölkin á að í dag, 1. júlí, tekur gildi bann við notkun svartolíu á Norðurslóðum í samræmi við ákvörðun sem tekin var fyrir þremur árum á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um nýjan viðauka við MARPOL-samninginn.
„Aðildarríki IMO hafa haft nægan tíma til að innleiða reglurnar í landslög og banna skipum sem sigla undir fána þeirra að flytja eða nota svartolíu sem skipaeldsneyti á norðurslóðum. Útgerðir flutningaskipa sem sigla um norðurhöf hafa sömuleiðis haft nægan tíma til undirbúnings með því að skipta yfir í hreinna eldsneyti. Norðmenn hafa þegar innleitt bannið á hafsvæðinu í kringum Svalbarða,“ segir í bréfinu.