„Ég ætla að þakka hæstvirtum ráðherra fyrir svörin. Þau voru svo góð að mín seinni spurning er orðin að engu,“ sagði Ólafur Adolfsson eftir að Alma Möller heilbrigðisráðherra svaraði spurningu hans á Alþingi.
Ólafur spurði:
„Hér á Íslandi búum við að mjög öflugu heilbrigðiskerfi þrátt fyrir að sumum virðist það sérstakt kappsmál að nýta sérhvert tækifæri til að tala það niður. Kostir íslenska heilbrigðiskerfisins eru ekki síst fólgnir í öflugri samvinnu hins opinbera og einkaaðila. En betur má ef duga skal, virðulegur forseti, og til staðar eru mýmörg tækifæri til að efla einkaaðila í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að veita enn betri þjónustu en gert er í dag og um leið að létta á álagi heilbrigðisstarfsfólks hjá hinu opinbera.
Í nýlegri hvítbók um stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra lyfjabúða kemur fram að á Norðurlöndunum hefur þróunin verið sú að færa aukin verkefni til lyfjabúða með það að markmiði að bregðast við auknu álagi innan heilbrigðiskerfisins og styrkja lyfjabúðir sem hluta af heilbrigðisþjónustunni og einnig sem viðbragð við mönnunarvanda í heilsugæslunni. Því vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um hvort hann telji þörf á því að færa aukin verkefni til lyfjabúða. Og ef svo er, hvernig sér hæstvirtur ráðherra fyrir sér að það verði útfært?“
Þess ber að geta að Ólafur er lyfsali.
Alma svaraði:
„Ég þakka háttvirtum þingmanni Ólafi Adolfsyni kærlega fyrir þessa góðu fyrirspurn og ég er mjög sammála þingmanninum um að það eru sóknarfæri í því sem við köllum tilfærslu starfa. Mér finnst það nú svolítið ógagnsætt orð þannig að ég tala gjarnan um skynsamlega verkaskiptingu. Það þýðir að hver og ein starfsstétt er ekki að sinna verkefnum sem aðrar starfsstéttir geta sinnt, þannig að t.d. læknir sé ekki að sinna því sem hjúkrunarfræðingur eða sjúkraþjálfari getur gert og þannig koll af kolli. Þetta er risastórt verkefni en það er gríðarlega mikilvægt að slípa þetta allt saman til.
Það er rétt að það er komin út svokölluð hvítbók um hvernig nýta megi góða starfskrafta lyfjafræðinga enn betur. Þar er nefndur fjöldi verkefna, t.d. að sinna bólusetningum, og það erum við einmitt að fjalla um í einu frumvarpi sem liggur fyrir þinginu, það er stóraukin fræðsla um lyf og margt fleira mætti nefna, jafnvel útgáfa lyfseðla við einföldum vandamálum og fleira mætti telja
Þessi skýrsla er núna til umfjöllunar inni í ráðuneytinu. Þar er verið að greina þessar tillögur og sumar þarf að kostnaðargreina. Sú vinna stendur yfir og síðan þyrfti slík tilfærsla að vera í sátt, auðvitað við lyfjafræðingana fyrst og fremst en líka aðrar starfsstéttir. Þar gildir nú að mörgum er sárt um eigin verkefni en við verðum einfaldlega að koma þessum málum áleiðis.“
Þá kom Ólafur aftur í ræðustól og sagði: „Ég ætla að þakka hæstvirtum ráðherra fyrir svörin. Þau voru svo góð að mín seinni spurning er orðin að engu.“
Ólafur spurði nú samt aftur. Fjallað verður um það síðar.