Vilja að Siv verði formaður Framsóknarflokksins

Hópur fólks innan Framsóknarflokksins sér ekki fram á frið í flokknum eða möguleika til vaxtar undir forystu Lilju Daggar Alfreðsdóttur eða Ingibjargar Isaksen.

Þær tvær, varaformaður og þingflokksformaður, hafa boðað formannsframboð. Hreyfingin sem um ræðir vill að Siv Friðleifsdóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, gefi kost á sér í formannsslag við þær stöllur.

Þetta segir innvígður heimildarmaður í röðum Framsóknarflokksins.

Aðrar heimildir staðhæfa að nöfn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings og Árna Magnússonar hafi einnig verið nefnd.

Heimildir Samstöðvarinnar innan flokksins segja bullandi óánægju í grasrót flokksins með stöðuna, jafnt á mölinni sem úti á landi.

Framsóknarflokkurinn hefur fengið mjög vonda mælingu í skoðanakönnunum undanfarið. Þessi elsti flokkur landsins sem hefur verið stórveldi áratugum saman og kallaður annan valdaflokkanna tveggja, er sem stendur afar fáliðaður á Alþingi með aðeins fimm þingmenn ndir stjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar.

Sigurður Ingi hefur gefið út að hann hætti formennsku á næsta flokksþingi sem nálgast óðfluga, 14.- 15. febrúar.

Ekki náðist í Siv við vinnslu fréttarinnar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí