Gluggað í dagbók Kristrúnar

Það gengur líka vel í þinginu. Við erum að klára fullt af málum. En í næstu viku ætlum við að taka hlé til að beina athyglinni að spennandi sveitarstjórnarkosningum.

Kristrún Frostadóttir.

Kristrún forsætisráðherra skrifaði einhverskonar dagbókarfærslu á Facebook síðdegis í gær. Lesum:

Gott að komast í klippingu

En ég er þó með hugann við ýmis þjóðþrifamál. Til dæmis óboðlega stöðu í samgöngum til Eyja sem við erum að taka á. Í fyrramálið hef ég boðað til fundar í þjóðhagsráði til að ræða fjármálaáætlun og stöðu efnahagsmála. Og í vikunni afgreiðum við frumvarp á Alþingi um að lækka verðið á dælunni og vakta verðið í sumar – til að bregðast við áhrifum af verðhækkunum á olíu.

Því tengt hefur ríkisstjórnin lagt fram frumvarp um nýtt og betra fyrirkomulag við ákvörðun launa hjá þjóðkjörnum fulltrúum og æðstu embættismönnum. Það er löngu tímabær breyting sem við höfum unnið að í samráði við aðila vinnumarkaðar – og felur í sér að fyrst um sinn hækka launin um 3,5% að hámarki árlega til ársins 2028. Þannig setjum við mikilvægt fordæmi.

Við erum að leysa ýmis mál. Ég er sérstaklega ánægð í vinnunni þegar okkur tekst að höggva á hnúta í málum sem hafa verið í stoppi alltof lengi.

Í dag kynntu félags- og húsnæðismálaráðherra og fjármálaráðherra annan húsnæðispakka þessarar ríkisstjórnar með Heiðu borgarstjóra. Þar var meðal annars sagt frá löngu tímabærum samningi um 1.400 íbúðir á ríkislóðum í Reykjavík – sem er í fyrsta skipti frá árinu 2017. Til að fjölga íbúðum – með skilyrði um að 30% íbúða verði hagkvæmar, óhagnaðardrifnar eða henti fyrir hlutdeildarlán.

Þetta sýnir hvað við getum gert þegar ríki og sveitarfélög vinna saman að settu marki. Þá grípum við til aðgerða til að styrkja stöðu leigjenda, sköpum hvata til umbreytingar á vannýttu atvinnuhúsnæði í almennar íbúðir og hefjum stefnumótun um málefni heimilislausra.

Það gengur líka vel í þinginu. Við erum að klára fullt af málum. En í næstu viku ætlum við að taka hlé til að beina athyglinni að spennandi sveitarstjórnarkosningum. Þar skiptir máli að áhrif jafnaðarfólks verði sem mest í sveitarstjórnum vítt um land – og að við höldum áfram að höggva á hnúta sem verið hafa í samskiptum ríkis og sveitarfélaga.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí