Hvorki Kristrún né Eyjólfur svara Eyjamönnum

Alþingi: Karl Gauti Hjaltason:

„Enn og aftur ætla ég að ræða samgöngumálin við Vestmannaeyjar og kemur kannski engum á óvart. Svo ótrúlegt sem það er þá er staðan nú verri en nokkru sinni áður, hvað varðar siglingar farþegaferjunnar Herjólfs til Vestmannaeyja.
Herjólfur siglir á annarri skrúfunni til Þorlákshafnar tvisvar á dag og tekur sú sigling fjórar klukkustundir. Það er oft engin skemmtisigling, frú forseti, og fólk forðast það ef nauðsyn kallar ekki til slíkra ferðalaga.
Horfurnar eru ekki góðar, frú forseti, því að ekki er fyrirséð að dýpkun í Landeyjahöfn taki minna en eina eða jafnvel tvær vikur til viðbótar ef veður haldast þokkaleg.
Slíkt ástand hefur mikil áhrif á rekstur gisti- og veitingahúsa, á fyrirtækjarekstur og alla þá sem reka þjónustu við ferðamenn í Vestmannaeyjum og síðast en ekki síst á daglegt líf allra íbúa.
Sumarmánuðirnir eru sá tími ársins sem ferðaþjónustufyrirtækin reiða sig á að samgöngur séu í lagi við meginlandið. Þá hafa gisti- og veitingastaðir og ýmsir ferðaþjónustuaðilar tækifæri á að afla sér tekna sem vinnur upp þá ládeyðu sem oft hefur einkennt viðskiptin þegar vetrarveðrin hamla góðum samgöngum við Vestmannaeyjar.
En í vor er staðan sú að afbókanir hrannast upp hjá þessum aðilum, ekki bara fyrirtækjum heldur fólkinu sjálfu sem heldur kannski fermingarveisluna og það vantar helminginn af gestunum, að ógleymdum þeim áhrifum sem það hefur á veitingar og gistingar.
Það eru stórar helgar fram undan. Puffin Run er eftir tíu daga. 1.800 manns eru væntanlegir til Eyja. Enginn veit nú hvort þetta geti farið fram með þátttöku þessara aðila. Óvissan ræður ríkjum, frú forseti. Við þurfum öflugra dæluskip og það þarf að vera til reiðu. Við þurfum að ljúka rannsóknum og ljúka framkvæmdum við Landeyjahöfn þannig að hún geti sinnt hlutverki sínu.
Að lokum: Svörin. Íbúar, fyrirtæki og ferðamannasamtök í Vestmannaeyjum hafa sent endalaus bréf til hæstvirts innviðaráðherra og forsætisráðherra um svör hvað varðar samgöngur við Vestmannaeyjar, en þeir fá engin svör.
Hvernig væri að láta svo lítið, frú forseti, að svara þessu fólki?“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí