Kveðjuræða Þórdísar Kolbrúnar

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verðandi sendiherra í London hélt kveðjuræðu á Alþingi í dag:

„Mig langar að nýta þær tvær mínútur sem ég hef í ræðustól til að þakka fyrir árin á Alþingi. Þau eru orðin 13 talsins þótt í ólíkum hlutverkum hafi verið. Mig langar að byrja á því að þakka starfsfólki Alþingis fyrir samstarfið, fyrir allt sem það hér gerir; hvort sem það er hér á skrifstofu, fólkið sem hellir upp á kaffið, tölvudeildinni sem ég hef mjög oft haft samband við og öll hin sem gera okkur kleift að sinna vinnunni okkar og ganga í þau störf sem þarf að ganga í. Hingað mætti ég fyrst 25 ára gömul og fylgdist með öllu sem ég gat eins og ugla til að læra og skilja stjórnmálin og pólitíkina.

Frú forseti. Stundum líða áratugir þar sem ekkert gerist og svo eru vikur þar sem áratugir líða. Við gætum verið að lifa slíka tíma í heimssögunni og slíkir tímar gera miklar kröfur til okkar sem gegnum ábyrgðarstöðum í samfélaginu. Allir þeir sem vilja njóta frelsis þurfa að hafa fyrir því og allar þjóðir sem vilja vera fullvalda og sjálfstæðar þurfa að vanda sig. Ég held að upp séu komnir tímar þar sem þörf verður á meiri stjórnmálum og minni pólitík. Við búum við það hér að hafa mikið samfélagslegt traust. Það hefur verið mér tíðrætt en Alexander Stubb, forseti Finnlands, orðaði það sem hið norræna gull. Ég held að það sé eitthvað sem við ættum að tileinka okkur, muna og standa vörð um og leika okkur ekki að eldinum þegar kemur að þessu samfélagslega trausti því það eru verðmæti sem ekki er hægt að setja pening á og við gætum þurft svo verulega á því að halda. Megum við áfram vera raunverulega frjáls og halda áfram að njóta þeirrar einstöku gæfu að fá að búa í farsælu, öruggu og réttlátu samfélagi, í okkar himneska landi sem við eigum öll saman og við alþingismenn fáum að þjóna.

Ég vil því þakka fyrir mig af öllu hjarta. Gangi ykkur háttvirtum þingmönnum vel í ykkar störfum. Ég þakka fyrir samstarfið öll þessi ár, þvert á flokka, þar sem við höfum getað þroskað samtöl, vináttu og rökræður. Ég óska ykkur velfarnaðar og góðs gengis.“ 

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí