Tölfræðilegt kraftaverk í boði Miðflokksins?

Sveinn Atli Gunnarsson skrifaði á Rauða þráðinn:

„Ég var að fara yfir framboðslista Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á þeirra eigin vefsíðu (já, ég veit að algóritminn mun fara í stríð við mig). Samkvæmt þeirra eigin upplýsingum þá býður flokkurinn fram í 14 sveitarfélögum undir eigin merkjum og, haldið ykkur fast, oddvitarnir í öllum 14 sætunum eru karlar.

Gefum okkur eitt augnablik þá „róttæku“ hugsun að konur séu tölfræðilega jafn líklegar og karlar til að búa yfir hæfni til forystu (50/50 líkur). Ef kynin væru jafn hæf, hversu líklegt er þá að 14 karlar raðist í öll oddvitasætin fyrir hreina tilviljun?

Svarið er: 1 á móti 16.384.

Til að átta sig á því hversu fjarstæðukennd þessi tala er, þá eru hér nokkrir hlutir sem eru líklegri en að Miðflokkurinn hafi „bara óvart“ ekki fundið eina hæfa konu til að leiða lista:

Fjögurra blaða smári: Það er þrisvar sinnum líklegra að þú finnir fjögurra blaða smára í fyrstu tilraun (1 á móti 5.000).

PIN-númer: Það er 60% líklegra að þú giskir á rétt fjögurra stafa PIN-númer hjá ókunnugum manni í fyrstu tilraun (1 á móti 10.000).

Yatzy: Það er þrettán sinnum líklegra að þú fáir fimm eins í Yatzy í fyrsta kasti (1 á móti 1.296).

Að halda því fram að þessi röðun sé byggð á „hæfni“ en ekki meðvituðu vali eða kerfisbundinni útilokun, er eins og að vinna í lottóinu og halda því fram að þú sért bara svona rosalega góður að velja tölur.

Tölfræðin lýgur ekki, hún öskrar á okkur. Þetta er ekki tilviljun, þetta er lokaður karlaklúbbur. Ef þú trúir því að kynjaskiptingin 14-0 sé eðlileg, þá trúir þú því í raun að líkurnar á að finna hæfan karl séu 16.384 sinnum meiri en að finna hæfa konu.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí