Eins og staðan er núna þurfa Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin að halda vel á sínu til að ná 6 fulltrúum. Vinstrið, Viðreisn og Miðflokkur hafa möguleika á 3 fulltrúum en Framsókn, Píratar og Flokkur fólksins geta bara vænst þess að fá 1 fulltrúa. Sósíalistar, Okkar borg og Góðan daginn hafa enga möguleika á fulltrúa.
Reynslan sýnir að atkvæði færast frá flokkum sem hafa litla eða veika möguleika á fulltrúa. Atkvæði munu færast frá Sósíalistsflokknum og Pírötum yfir á Vinstrið og mögulega Flokk fólksins, ef hann sýnir bata á næstu vikum. Atkvæði Okkar borgar munu færast yfir á Miðflokkinn. Þetta gæti tryggt Miðflokknum þriðja fulltrúann og Vinstrinu þann fjórða.
Vinstrið er eina framboðið sem hefur bætt við sig fylgi á síðustu vikum, virðist taka frá Samfylkingunni og svo almennt og yfirleitt. Ekkert annað framboð hefur náð í gegn. Mögulega hefur Vinstrið toppað of snemma en það er líka möguleiki að vöxtur þess haldi áfram, enda ætti fylgi við flokka vinstra megin við Samfylkinguna að vera +25% í Reykjavík. Önnur framboð eru mikið að miða á sama fylgið, það sem Framsókn náði síðast en hefur ekki tekist að halda í.
Miðflokkurinn og Okkar borg eru reyndar á sér róli, virðast vilja fá mælingu á hversu stór hluti borgarbúa er haldinn andúð á útlendingum, baráttu hinsegin fólks, göngugötum og ýmsu sem einkennir nútímann.
-gse