Fimm flokkar öryggir í borgarstjórn

Gunnar Smári skrifaði:

Þetta er könnun Maskínu frá miðvikudeginum. Ég hef sett línu við það fylgi sem flokkar þurfa að fá til að ná inn borgarfulltrúa (um 4%). Og líka vikmörk í könnuninni. Efri vikmörkin segja að flokkur þurfi að fá um 5,2% fylgi í könnunum svo sú könnun segi skýrt að allar líkur séu á að viðkomandi flokkur nái inn manni. Og þá á eftir að taka tillit til þess að kjósendur flokka skila sér misvel á kjörstað, því verr sem kjósendahópurinn er yngri.

En miðað við þessi 5,2% er Framsóknarflokkurinn á mörkunum að vera öruggur inni samkvæmt þessari könnun. En Flokkur fólksins og Píratar æði tæpir og Sósíalistaflokkurinn líklega örugglega úti. Góðan daginn og Okkar borg þyrfti stórkostlegt kraftaverk, eitthvað sem á sér engin fordæmi í stjórnmálasögunni.

Píratar mældust með 14,5% hjá Maskínu daginn fyrir kosningarnar 2022 en fengu 11,6% á kjördag. Samfylkingin mældist með 22,8% en fékk 20,3%. Sjálfstæðisflokkurinn mældist hins vegar með 20,5% en fékk 24,5% og Framsókn mældist með 14,6% en fékk 18,7%.

Og þó að Flokkur fólksins mælist oft lægri í könnunum til þings en kemur upp úr kössunum þá átti það ekki við í borgarstjórnarkosningunum 2022. Þá mældi Maskína flokkinn með 6,5% en hann fékk bara 4,5%. Miðflokkurinn mældist með 3,5% en fékk 2,4%.

Af þessu má ætla að líklegra sé en ekki að Píratar skili sér illa á kjörstað. Svo Píratar séu líklegir til að ná inn manni þyrftu þeir að mælast með næstum 6% fylgi. Og þótt saga þingkosninga ætti að gefa Flokki fólksins von þá gerir sagan frá 2022 það ekki. Og samanburður á könnun og kosningum 2022 sýnir það sama og alltaf sést í slíkum samanburði, að flokkar sem eru á mörkunum við að ná inn muni missa fylgi. Einhver hluti kjósenda þessara flokka færa sig frá flokkunum af ótta við að atkvæði þeirra skili engum fulltrúa.

Það eru því bara fimm flokkar sem eru svo til öryggir inn samkvæmt þessari könnun: Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Vinstrið, Viðreisn og Miðflokkur. Næst kemur Framsókn sem ætti að ná inn miðað við söguna en Flokkur fólksins, Píratar og Sósíalistaflokkurinn berjast fyrir lífi sínu. Og í raun er ólíklegt að þessir flokkar sleppi inn. Nema Maskína sé að mæla vitlaust, sem er auðvitað mögulegt. Eða að eitthvað stórkostlegt gerist í dag.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí