Gott tímakaup í úthringingum fyrir Einar

Framsóknarflokkurinn greiðir ungu fólki sem hringir út til almennings krónur 6.000 á tímann í þeirri von að símtölin laði að atkvæði og tryggi oddvitanum framgang í borgarstjórnarkosningunum á morgun.

Þetta herma heimildir Samstöðvarinnar.

Einn úthringjandi segist „varla hafa vitað bofs“ um Framsóknarflokkinn áður en hann fékk það djobb að hringja út til að boða fagnaðarerindið. Sá vill ekki koma fram undir nafni en segist fyrir símavinnuna hafa leitað sér upplýsinga hjá innvígðum um mannkosti Einars Þorsteinssonar, oddvita flokksins í Reykjavík. Hann var borgarstjóri á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka og náði alls inn fjórum mönnum fyrir fjórum árum. Einar telst nú ekki öruggur með að ná kjöri samkvæmt skoðanakönnunum.

Ekki liggur fyrir hvort fleiri stjórnmálahreyfingar greiða óvönu fólki svo háar fjárhæðr í atkvæðaleitinni eða hvort um nýbreytni er að ræða.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí