Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, segir að sér sé verulega misboðið við að heyra fregnir af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. Hann segir að pakkinn gangi allt of skammt fyrir alla þá sem horfa upp á laun sín hverfa í hyldýpið, í vasa leigusala. Hann segir að sú hækkun á húsaleigubótum, sem ríkisstjórnin hefur stært sig af, gagnist aðeins örfáum.
„Sjaldan hefur verið meira misboðið en við fréttir gærdagsins um aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar og launahækkanir til lágtekjuhópa. Að sama skapi var mér stórlega misboðið að sjá vel meinandi fólk fagna því hvernig stórir hópar launþega á leigumarkaði þurfa að greiða fyrir þetta með heilsu sinni og lífskjörum. Meðalhúsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um rúmlega 40.000 kr. frá því í haust. Hækkun á grunnframfærslu er að sama skapi tæplega 15.000 kr frá því í fyrra. Samanlagt er þessi hækkun á framfærslukostnaði leigjenda uppá 55.000 kr,“ segir Guðmundur Hrafn á Facebook.
Hann segir að með þessu sé verið að viðhalda þeirri kjaraskerðingu sem leigjendur hafa þurft að búa við svo áratugum skiptir. „Samið var um hækkun á ráðstöfunartekjum upp á 16.000 kr. og hækkun húsnæðisbóta upp á 15.000 kr til lítils hóps leigjenda, aðeins þeirra sem fá hámarksbætur. Að meðaltali mun upphæðin vera 10.500 kr. Það er hækkun ráðstöfunartekna upp á 26.500 kr á meðan að framfærsla og húsaleiga hækkar um 55.000 kr. Með þessum samningum er verið að staðfesta og viðhalda áratugalangri kjaraskerðingu fyrir stóra launþegahópa á leigumarkaði,“ segir Guðmundur Hrafn og bætir við að lokum:
„Mér finnst það vægast sagt hræðileg niðurstaða og allt vel meinandi fólk ætti að sjá sóma sinn í að láta í sér heyra um það. Það er aldrei réttlætanlegt að láta þær fjölskyldur sem verst hafa það í okkar samfélagi borga fyrir frið á vinnumarkaði með hnignandi lífskjörum sínum, svo hægt sé að framlengja líf þessarar ríkisstjórnar og borga skólamáltíðir fyrir formann SA.“