Hefurðu eitthvað að segja? Viltu koma í viðtal á Samstöðinni? Þá er tækifærið á laugardaginn næsta, 28. júní. Þá verður opið hús á Samstöðinni í tilefni af söfnunarþætti, Maraþon málþófi til að tryggja sjálfstæði Samstöðvarinnar.
Þau sem vilja koma í viðtal geta komið í Bolholt 6 kl. 12 á hádegi og gengið til stúdíós þar sem starfsmenn Samstöðvarinnar munu ræða við alla. Fólk má hafa brýnt erindi við hlustendur eða sáralítið, bara viljan til að skemmta sér í spjalli um heima og geima.
Maraþon málþófið byrjar með morgunsjónvarpi kl. 7 á laugardagsmorgun og mun halda áfram allan daginn, gegnum nóttina og langt fram eftir sunnudeginum. Markmiðið er að vera með lengstu beinu útsendingu Íslandssögunnar á þjóðmálaþætti. Sá þáttur verður fjölbreytilegur, alls kyns viðtöl, samtöl, spjall og rifrildi. Og meðal annars verður stúdíóið opnað fyrir gestum og gangandi. Starfsmenn Samstöðvarinnar ræða við hvern sem er um hvað sem er.
Markmið Maraþonsins er að safna 300 nýjum áskrifendum hið minnsta. Sem kunnugt er eru það áskrifendur sem knýja Samstöðina áfram, fólk sem leggur til 2.750 kr. á mánuði svo stöðin geti haldið áfram útsendingum, eflst og dafnað (sum borga meira). Ef þú vilt slást í hóp áskrifenda geturðu skráð þig hér: Áskrift
Þau sem vilja styðja við rekstur Samstöðvarinnar geta líka lagt inn á Alþýðufélagið, sem á og rekur Samstöðina:
Alþýðufélagið
kennitala: 5508911669
banki: 1161-15-201669