
Þetta er úrvalsvísitalan síðustu fimm árin. Hún hefur lækkað um 23,1% að nafnvirði, 43,7% að teknu tilliti til verðbólgu. Ég held að lífeyrissjóðirnir, sem eiga meira en helminginn af hlutafénu í þessum félögum, ættu að endurskoða hvernig þessum fyrirtækjum er stýrt, hætta að vera þögull meðeigandi og velja sjálfir stjórnendur sem geta gert betur. Besta leiðin til þess væri að færa starfsfólki þessara fyrirtækja atkvæðarétt sjóðanna í fyrirtækjunum, það er líklega fólkið sem þekkir fyrirtækin best og veit best hvernig heimskulegar ákvarðanir hafa veikt fyrirtæki.
Í raun er þessi lækkun meiri því stjórnir þeirra hafa látið fyrirtækin kaupa ógrynni af hlutabréfum í sjálfum sér í von um að halda uppi verðinu. Slík ráðstöfun veikir fyrirtæki til lengri tíma. Það er fráleitt að verja fé fyrirtækjanna í kaup á eigin hlutabréfum í stað þess að fjárfesta í því sem styrkir fyrirtækin og gerir þau betur í stakk búin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Það er því mikilvægt að lífeyrissjóðirnir grópi inn í, því óbreytt stefna setur atvinnu eigenda sjóðanna í hættu.
–gse