Frá Hruni hafa eigendur stækkað sína sneið

Það virðist gleymast í umræðunni að kjaradeilur eru um hvernig afrakstri vinnunnar er skipt; hversu mikið launafólk fær og hvað eigendur fyrirtækjanna taka til sín. Kjaradeilur eru stéttabarátta. Þessi lína sýnir úttektir eigenda úr rekstri sem hlutfall af launakostnaði viðskiptahagkerfisins að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er augljóst að frá Hruni hafa eigendur stækkað sína sneið, þótt þeir þykist ekkert kannast við það í dag.

Ef eigendur fyrirtækja myndu sætta sig við sama hlutfall og var á fyrstu árum aldarinnar ættu þeir í ár um 650 milljarða króna til að hækka laun starfsfólksins. Hvers vegna gera þeir það ekki? Þeir vilja auðvitað eiga peninginn sjálfir.

-gse

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí