Ber öll merki að horft sé til breskrar nýfrjálshyggju

Auðvaldið 27. okt 2022

„Betur færi að þingmenn axli þá ábyrgð sem starfi þeirra fylgir og leitist við að létta byrðar almennings í ríkjandi afkomukreppu,“ segir í ályktun miðstjórnar Alþýðusambandsin þar sem lýst er mikilli furðu á framkomnu frumvarpi þingmanna Sjálfstæðisflokksins um félagafrelsi á vinnumarkaði, sem ASÍ segir að minni á breska nýfrjálshyggju.

„Á Íslandi ríkir  félagafrelsi,“ segir í ályktuninni. „Tengsl kjarasamninga og stéttarfélagsaðildar hafa reynst mikilvægur þáttur í linnulausri baráttu íslensks launafólks fyrir mannsæmandi kjörum, samtryggingu og velferð og tryggt meiri jöfnuð hér á landi en víðast annars staðar. Verkalýðshreyfingin hefur engan hug á að láta sérvisku jaðarhóps stjórnmálamanna hafa áhrif á þá kjarnastarfsemi sína.

Tímasetning umfjöllunar Alþingis um frumvarpið er mjög sérstök, nú þegar nokkrir dagar eru í að allir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna og viðræður þegar hafnar. Við þau tímamót er frumvarpinu hleypt á dagskrá þingsins og umsagna krafist frá verkalýðshreyfingunni innan tveggja vikna. Ljóst er þessari aðför verður svarað af samhentri og sameinaðri verkalýðshreyfingu enda ráðist að tilverurétti sterkra stéttarfélaga. Augljóst virðist að stjórnvöld ætla að leiða hjá sér vaxandi og alvarlegan afkomuvanda launafólks og þekkja þá lausn eina að hækka álögur á heimilin í landinu og ráðast gegn verkalýðshreyfingunni.

Frumvarpið ber öll þess merki að horft sé til breskrar nýfrjálshyggju. Skipuleg aðför nýfrjálshyggjunnar að velferðarkerfum Breta og niðurbrot á skipulagðri verkalýðshreyfingu á síðustu áratugum veldur því að margir óttast að orkukreppa og kaupmáttarhrun muni kalla raunverulegar hörmungar yfir þjóðina á næstu misserum.

Betur færi að þingmenn axli þá ábyrgð sem starfi þeirra fylgir og leitist við að létta byrðar almennings í ríkjandi afkomukreppu. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hvetur því þingflokk sjálfstæðismanna til að beina kröftum sínum að uppbyggilegri verkefnum í stað þess að fylkja sér undir gunnfána lúinna baráttumála.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí