Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Skólinn, Vg, hinsegin bækur, ME-sjúkdómur, Frosti & Smáriarrow_forward
Þórdís Sigurðardóttir sem veitir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu forstöðu tekur undir margt af þeirri alvarlegu gagnrýni sem komið hefur fram á grunnskólakerfið. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Orra Pál Jóhannsson þingflokksformann um Vg. Rithöfundarnir Kristín Ómarsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir segja frá Queer bókmenntahátíð og Helga Edwardsdóttir varaformaður ME félagsins segir frá þessum sjúkdómi og ráðum við honum. Í lokin spilum við viðtal Frosta Logasonar við Gunnar Smára Egilsson um efnahagsmál og kynusla.
Borgin, áfengi, kyn, kona í buxum og víkingararrow_forward
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi ræðir samband stjórnmála og áfengis en mörgum finnst þörf á bragarbót. Alex Diljar Birkisbur Hellsing, Veiga Grétarsdóttir Sulebust, Kitty Anderson og Theodór Una Braga ræða hvað er kyn fyrir einstaklingum og samfélagi. Auður Styrkársdóttir segir okkur frá Þuríði formanni, sem var kona í karlmannsbúningi. Og Guðrún Dröfn Whitehead lektor í safnafræði við Háskóla Íslands hefur skrifað bók þar sem hún leitar svara við því.
Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinuarrow_forward
Jódís Skúladóttir þingmaður VG varpar sprengju í umræðuna og upplýsir að hún hafi gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna drykkju þingmanna við þinglok í vor. Magga Stína segir fréttir af Gaza og Þorvaldur Ingi Jónsson, þrautreyndur ríkisstarfsmaður segir mikla sóun eiga sér stað í stjórnsýslunni og að spara mætti stórfé með betri vinnubrögðum. Ole Anton Bieltvedt kaupsýslumaður og dýraverndarsinni skrifar oft greinar um samfélagsmál. Hann kemur til okkar og segir hvers vegna.
Helgi-spjall: Erpurarrow_forward
Erpur Eyvindarson kemur í helgi-spjall við Rauða borðið og segir okkar frá því hvernig hann varð sá sem hann er; frá ætt sinni og uppruna, fjölskyldu og vinum, kynslóð og Kópavogi og þeim þráðum sem mynda þann sem hann er í dag.
Vikuskammtur: Vika 33arrow_forward
Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Almar Blær Sigurjónsson leikari, Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari og safnvörður, Þorbjörn Rúnarsson tenór og kennari og Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af því að sumarleyfin eru að klárast og daglegt líf að finna venjubundnari takt og átökin um grundvallarmál samfélagsins að brjótast fram.
Ungt fólk, Gaza, vanlíðan, vindmyllur og fyndniarrow_forward
Í Rauða borði kvöldsins ræðir Björn Þorláksson við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur varaþingmann og Harvard-nema í hagfræði sem útilokar ekki að íslensk efnahagsstjórn kunni að vera sú versta í heimi. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar mætir til skrafs við Björn og Steinunni Ólínu um geðheilbrigði ungmenna sem er framhald af umræðu Samstöðvarinnar sem hófst í vikunni um stöðu og líðan ungs fólks í landinu. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur síðan til okkar og ræðir kosti og galla vindorkugarða á Íslandi. Hún er sammála Landvernd um að klára þurfi stefnumótun og að tímaröð framkvæmda þeirra sem fyrirhugaðar eru kunni að vera röng. Að lokum ræðir Gunnar Smári við sagnfræðinginn og rithöfundinn Þórunni Valdimarsdóttur en á dögunum komu út eftir hana ljóðabók og önnur merk bók um það kostulega en rannsóknarverða fyrirbæri, íslenska fyndni.
Pólitík, fjárlög, kaldur blettur, íþróttir og saksóknariarrow_forward
Synir Egils, Sigurjón og Gunnar Smári Egilssynir, spjalla um pólitíkina. Síðan ræðir Sigurjón við tvo fulltrúa í fjárlaganefnd, Ásta Lóa Þórsdóttir í Flokki fólksins og Ágúst Bjarni Garðarsson frá Framsókn ræða komandi fjárlög. Halldór Björnsson, veðurfræðingur á Veðurstofunni, kemur og ræðir vendipunkta í veðri, umhverfi og afkomu og Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði svarar því hvers vegna Íslendingar vinna svona fáar medalíur á ólympíuleikunum. í lokin sláum við á þráðinn til Hauks Arnþórssonar stjórnsýslufræðings sem segir að pólitíkin kunni að blandast inn í mál Helga Magnússonar varasaksóknara.
Vindmyllur, málfrelsi, rafbækur og risamálheildinarrow_forward
Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd kemur og ræðir fyrsta vindorkuverið á Íslandi. Svala Magnea Ásdísardóttir formaður Málfrelsis ræðir þöggun og stýringu umræðunnar. Barbara Helga Guðnadóttir borgarbókavörður ræðir um skort á rafbókum í rafbókasafninu. Hermann Stefánsson rithöfundur fjallar um risamálheildina. og hættunni sem að henni steðjar.
Ungt fólk, Gaza, einmanaleiki og RÚVarrow_forward
Sóley Lóa Smáradóttir, (17), Karl Héðinn Kristjánsson (29) og Gunnar Ásgrímsson, 24 ára ræða hlutskipti ungra Íslendinga á tímum óvissu og hraðra breytinga. Magga Stína segir okkur fréttir af Gaza of og Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og fræðikona segir okkur frá því hvernig einmanaleikinn getur drepið fólk of svip lífsgæðum. Og hvernig við getum varist honum. Í lokin kemur Guðni Tómasson menningarritstjóri Ríkisútvarpsins og ræðir stöðu stofnunarinnar.
Vikuskammtur: Vika 32arrow_forward
Þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Björn Þorláks ræða fréttir líðandi stundar með Atla Þór Fanndal og þeim Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem stýra heitasta podcasti landsins; Komið Gott. Stálu Vestmannaeyingar þjóðhátíðinni? Nýr forseti, sálgreining á Elon Musk, versta sumarveður síðan 1984, afhverju virðist tískusveifla í þá átt að konur snúi aftur til heimilisstarfa? Dægurmenning og hörmungarhyggja. Mun ríkisstjórnin eyða sér sjálf í haust?