Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Fátækt fólk, Eimreið, byssur og forsetaframboðarrow_forward
Varða, rannsóknarsetur vinnumarkaðarins, hefur sýnt fram á að stórir hópar vinnandi fólks búa við fátækt, draga fram lífið frá launatékk til launatékka. Kristín Heba Gísladóttir forstöðukona Vörðu segir okkur frá hvaða fólk þetta er og hvers vegna það er svona fátækt. Nýfrjálshyggjan er áfram á dagskrá Rauða borðsins. Kristin Vala Ragnarsdóttir prófessor og Þorvaldur Logason höfundur Eimreiðarelítunnar koma og segja frá áætlunum sem gerðar voru til að skipuleggja yfirtöku þessarar hugmyndafræði, sem átti eftir að kalla miklar hörmungar yfir samfélögin. Skotveiðimenn segjast mæta fordómum og skilningsleysi. Áki Ármann Jónsson upplýsir okkur um það og mikilvægi útvistar. Við höldum áfram að ræða við forsetaframbjóðendur. Röðin er komin að Agnieszku Sokolowska.
Útlendingalög, pólitíkin, nýfrjálshyggja og áfengiarrow_forward
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram breytingar á útlendingalögum. Hún mætir við Rauða borðið og færir rök fyrir sínu máli. Eiríkur Bergmann prófessor hefur skoðað uppgang hægri popúlista áratugum saman. Hann greinir áhrif stefnubreytinga Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í innflytjendamála á stjórnmálaumræðuna. Jónas Guðmundsson fyrrum rektor á Bifröst, kemur og ræðir um nýfrjálshyggjuna, sem hann segir að leiði til aukinnar samkeppni heldur þvert á móti til fákeppni og einokunar. Í lokin koma Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, heimspekingur og kynjafræðingur, og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá landlæknisembættinu og doktor í lýðheilsu, og ræða áhrif áfengis á samfélagið og einstaklinginn.
Dauði nýfrjálshyggju, hatur, Guantanamo, umhverfi og kjaraviðræðurarrow_forward
Þorvaldur Gylfason prófessor kemur að Rauða borðinu og segir okkar frá Joseph Stiglitz og erindi hans í Háskólanum, um dauða nýfrjálshyggjunnar og þörf fyrir nýtt stýrikerfi í samfélaginu. Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International ræðir hatur og rasisma. Ögmundur Jónasson segir okkur frá Máritínumanninn Mohamedou Ould Slahi sem heldur erindi á laugardaginn og bíómyndinni sem gerð var um hann. Auður H. Ingólfsdóttir sviðstjóri hjá Umhverfisstofnun kemur að Rauða borðinu og bregst meðal annars við spurningunni hvort heimurinn sé að óbreyttu að fara til helvítis. Og Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir kjaraviðræður og greinir átökin sem þar birtast.
Helgi-spjall: Björn Oddssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Björn Oddsson jarðfræðingur okkur frá bókinni sem hann kemur með til landsins, eftir langdvalir í Sviss í meira en hálfa öld, frá muninum á samfélaginu á Íslandi og í Sviss, frá sprungunum í Grindavík, samfélaginu sem hann kom frá og mörgu öðru.
Vikuskammtur: Vika 09arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Matthías Matthíasson klínískur sálfræðingur og teymisstjóri Geðheilsuteymis fangelsa, Ragnheiður Eiríksdóttir aka Heiða í Unun, útvarps- og tónlistarkona, doktorsnemi í heimspeki, Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum um dýrahald, kjaradeilum og deilum um innflytjendastefnu, heimsóknum stjórnmálafólks til almúgans á tímum stjórnarmálalegra hræringa.
Læknir fíkla, hipparnir, ferðaþjónustan og bókaútgáfaarrow_forward
Árni Tómas Ragnarsson læknir hefur gefið út lýfseðla á morfín til fólks sem háð er ópíóðum. Landlæknir svipti hann leyfinu. Árni Tómas rekur þessa sögu frá sinni hlið við Rauða borðið í kvöld. Benóný Ægisson, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson eru af hippakynslóðinni, börn eftirstríðsárakynslóðarinnar, og upplifðu það Ísland sem þau ólust upp inna sem grátt, þröngt og óbærilega leiðinlegt. Við förum með þeim í tímaflakk til þessa tíma. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hafnar því að álag á innviði sé ferðamannaágangi að kenna innanlands, segir rótina liggja í ástandi sem skapaðist á árunum 2010-2016. Heiðar Ingi Svansson, formaður félags íslenskra bókaútgefenda, segir margt benda til að prentaðar bækur lifi allar breytingar af þótt bylting hafi orðið í háttu samtímafólks.
Okur, svik, heilbrigðiskerfið, pönk og hugaríþróttirarrow_forward
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kemur og ræðir nokkur sláandi álitamál auk svartrar skýrslu þar sem tjón íslenskra neytenda hleypur á ríflega 60 milljörðum vegna ætlaðrar sviksemi skipafélaga. Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur kemur til okkar og segir okkur frá innflytjendur, hælisleitendum og heilbrigðiskerfinu. Er kerfið að sligast undan álagi vegna fólks frá öðrum þjóðum? Taugadeildin var skammlíf síð-pönksveit sem hefur vaknað til lífsins. Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur er einn meðlima. Hann segir okkur frá gildi pönksins og hverju það breytti. Matthías Imsland slær botninn í þáttinn en hann stýrði áður flugfélögum og gegndi aðstoðarmennsku fyrir ráðherra en er nú með bridds á heilanum.
Breiðholt, körfubolti, skautun og Rússlandarrow_forward
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir okkur frá íþróttastarfi í efra Breiðholti, því hverfi þar sem hlutfall innflytjenda er hæst. Finnur Dellsén prófessor í heimspeki ræðir við okkur um skautun og Ingunn Hreinberg Indriðadóttir, aðjúnkt og námsgreinaformaður í rússnesku við Háskólann, segir okkur frá Rússlandi Pútins.
Úkraína, bíó, biskupskjör og Gazaarrow_forward
Við byrjum á að slá á þráðinn til Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings í tilefni af því að tvö ár eru liðin frá innrás rússneska hersins í Úkraínu. Er einhver að vinna þetta stríð? Eða allir að tapa? The Zone of Interest er sterk mynd um hversdagsleika illskunnar. Anna Sigrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og feðgarnir Árni Óskarsson þýðandi og Bergur Árnason kvikmyndagerðarmaður koma að rauða borðinu og segja okkur frá myndinni og hvers vegna hún hafði svo sterk áhrif á þau. Við höldum kirkjuþing um biskupskjör með þeim Skúli S. Ólafsson presti í Neskirkju og Sigurvin Lárus Jónsson presti í Fríkirkjunni í Reykjavík, spyrjum um stöðuna á kirkjunni og frammistöðu biskupsefna í viðtölum við Rauða borðið. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri og metur stöðuna á Gaza og áhrif ástandsins á Mið-Austurlönd og heimspólitíkina.
Helgi-spjall: Lísa Pálsarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Lísa Pálsdóttir okkur frá sjálfri sér, fólkinu sínu og hippakynslóðinni, frá óþekkt og óreglu, seiglu og skemmtilegheitum.